Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1987, Page 32
Fulltrúar á áttunda
þingi FFSÍ, sem haldið
var í Kaupþingssalnum
i Reykjavík haustið
1944.
Sveinn
Sæmundsson
rithöfundur
32 VÍKINGUR
Stofnun samtaka
var mikil nauðsyn
„Hætt er við aö hefðum við ekki stofnað Farmanna- og fiskimannasambandið á
þessum tíma hefðu mörg ár liðið þangað til það hefði verið reynt á nýjan leik.
Jafnvel vafasamt hvort slík samtök sjómanna væru til í dag“.
Sá sem þetta mælti var Konráð Gíslason kompásasmiður og fyrrum stýrimaður
þegar hann var inntur eftir tildrögum aö stofnun FFSÍ. Hann er, eftir því sem best er
vitað, sá eini úr stofnsveit þessara samtaka, sem á lífi er í dag.
Konráð, sem nú er 83 ára
að aldri, stundar enn vinnu og
er hinn hressasti þrátt fyrir
langan og strangan vinnu-
dag. Hann er við góða heilsu,
utan að sjónin erfarin aö bila.
Konráö var meira en til i að
segja lesendum Víkings frá
tildrögum að stofnun Far-
manna- og Fiskimannasam-
bands Islands fyrir hálfri öld.
Það kom í minn hlut...
„Ég var um þessar mundir
formaður i Skipstjóra- og
stýrimannafélagi Reykjavik-
ur. Með mér í stjórninni var
Kristinn Stefánsson, gamall
skipsfélagi og vinur. Ég man
ekki hvor okkar átti hug-
myndina, en það kom i minn
hlut aö mæla fyrir tillögu á
fundi i félaginu okkar þess
efnis að stofnað yrði sam-
band sjómanna, sem einnig
gæfi út málgagn. Á Reykja-
vikursvæðinu voru starfandi
þrjú félög skipstjóra og stýri-
manna og okkur fannst að
krafta þessara félaga yröi að
sameina til hagsbóta fyrir
sjómenn.
Hugmyndin var i fyrstu
þannig að i þessu fyrirhug-
aða sambandi yröu allir sjó-
menn, yfirmenn jafnt sem
undirmenn. Fyrir þvi reyndist
ekki hljómgrunnur, ýmsir álitu
að þar sem undirmenn væru
fleiri myndu þeir taka öll ráð í
sinar hendur og þar með yrð-
um við yfirmenn áhrifalaus
minnihluti."
Konráð brosti að þessu
síöasta en hélt svo áfram:
„Tillögu okkar um stofnun
sambands var vel tekiö og
hún samþykkt í Skipstjóra-
og stýrimannafélagi Reykja-
víkur. Við skrifuðum þvi næst
öllum félögum yfirmanna og
buðum til stofnfundar. Flestir
tóku þessu vel og voru já-
kvæðir. Nokkurrar tregðu