Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1987, Page 207
Um sjómannaafslátt í staðgreiðslukerfí skatta,
í núgildandi Iögum um tekjuskatt njóta sjómenn sérstaks sjómanna- og fiskimannafrá-
dráttar frá tekjum, umfram þann 10% eða fasta frádrátt sem almennt er aður en tekju-
skattur er reiknaður. Sjómanna- og fiskimannaafsláttur á bæði við um sjómenn á
farskipunum og fiskiskipunum.
Sjómannaafslátturinn í núgildandi skattkerfi er föst krónutala á hvern dag sem maður
telst stunda sjómannsstörf. Vegna álagningar árið 1987 af tekjum 1986 er sjómannafrádrátt-
urinn 330 kr. á dag sem dregst frá tekjum áður en skattlagt er. Þessi tala var 245 kr. á dag við
álagningu 1986 vegna tekna ársins 1985.
Farmanna- og fiskimannafrádrátturinn er hins vegar hlutfall af tekjum og er skv.
núgildandi lögum 12% sem dregst einnig frá tekjum áður en tekjuskattur er reiknaður.
Eins og fram kemur í athugasemdum við frumvarp til laga um breytingu á lögum nr.
75/1981, um tekju- og eignarskatt, var sjómanna- og fiskimannafrádráttur sem hér segir,
vegna tekna ársins 1985, við álagningu 1986 (í millj. kr.).
Fjöldi Fjárhæð Áætluð fjárhæð
framt. v/1985 fyrri hluta 1987
Sjómannafrádráttur 10 386 515 millj. kr. 800 millj. kr.
Farmanna- og fiskimannafrádráttur 10 239 638 millj. kr. 990 millj. kr.
1 153 millj. kr. 1 790 millj. kr.
Við álagningu 1986 vegna tekna 1985 var sjómannafrádráttur 245 kr. á hvern dag sem
maður taldist stunda sjómannsstörf. Fjöldi daga er því 515 millj./245 kr./dag eða 2,1 millj.
daga.
Áætlaðar fjárhæðir sjómanna- og fiskimannafrádráttar eru framreiknaðar til verðlags á
fyrri hluta árs 1987 og ættu því að jafngilda því verðlagi sem miðað er við í frumvarpinu um
staðgreiðslukerfi skatta. Áætluð tekjubreyting milli áranna 1985 og 1986 er 35%. Sjómanna-
frádrátturinn er hækkaður um þá tölu sem samsvarar því að hann sé 330 kr. á dag við
álagningu 1987 vegna tekna ársins 1986. Á sama hátt er farið með farmanna- og fiski-
mannafrádráttinn, þó svo að tekjubreyting sjómanna á fiskiskipum sé áætluð 37% milli
áranna 1985 og 1986.
Áætlað er að tekjubreytingin frá 1986 til fyrri hluta árs 1987 sé um 15%.
Samkvæmt þessum forsendum ætti því sjómanna- og fiskimannafrádrátturinn að sam-
svara 1790 millj. kr. á verðlagi fyrri hluta árs 1987.
Sjómanna- og fiskimannafrádráttur kemur eingöngu til frádráttar við útreikning á
tekjuskatti, en ekki við útreikning á útsvari eða öðrum sköttum svo sem sjúkratrygginga-
gjaldi, sóknargjaldi og þess háttar.
Samkvæmt frumvarpinu um staðgreiðslukerfi skatta verður skattur til ríkisins 28,5% en
inni í þeirri álagningartölu eru sjúkratryggingagjald, framlag í Framkvæmdasjóð aldraðra,
sóknargjald og kirkjugarðsgjald sem er um 1,5-2,5% af tekjum í staðgreiðslukerfinu.
Tekjuskatturinn sjálfur er því um 26-27% af tekjum.
Miðað við staðgreiðsluna verður því beinn frádráttur frá tekjusköttum 1790 millj. kr. x
0,26 = 465,4 millj. kr. vegna sjómannaafsláttar, sé miðað við að hann kosti ríkið svipaða
fjárhæð og hann gerir í núgildandi skattkerfi. Sjómannaafsláttur á dag er því 465,4 millj. kr./
2,1 millj. daga eða um 222 kr./dag.
Ef miðað er við að tekjuskatturinn sé 27% af tekjum en ekki 26% þarf sjómanna-
afslátturinn að vera 230 kr. á dag.
manneklu
hefur veriö frá öndveröu að
gera starfiö i heild sinni
áhugaverðara en önnur störf
i þjóðfélaginu.
Ný skattkerfis-
breyting og stað-
greiðsla opinberra
gjalda
Eins og flestum er kunnugt
hefur F.F.S.Í. margítrekaö á
undanförum árum að staö-
greiðsla opinberra gjalda
komi til framkvæmda. Menn
geta vel rifjað upp aflaleysis-
timabilið 1951-57 og síðar
sildarleysistímabilið eftir
1967-68. Einnig má minnast
þess þegar þorskafli náði
vart 200 þús. tonnum o.s.frv.
Slikar niðursveiflur hafa ætið
höggið stór skörð i efnahag
sjómanna. Af þeim sökum
hafa sjómenn óskað eftir
staðgreiðslukerfi opinberra
gjalda.
Forystumenn F.F.S.Í. hafa
aö mjög takmörkuðu leyti
verið kallaöir til umfjöllunar
eða umsagnar og ekki hefur
enn formlega verið óskað eft-
ir umsögn F.F.S.Í. um þetta
mál frá hinu háa Alþingi. Full-
trúar F.F.S.Í. og félaganna
innan þess komu því þó á
framfæri munnlega við við-
skiptanefnd Alþingis að
kjarasamningar fiskimanna,
þeir sömu og Alþingi var kal-
lað saman sérstaklega útaf í
þyrjun jan., væru lausir ef
gengið yrði á hlut yfirmanna
við skattkerfisbreytingarnar.
En kjarasamningur þeirra er
annars gerður til 2ja ára.
F.F.S.Í. áskilur sér þvi allan
rétt á að krefjast leiðréttingar
fyrir hönd sinna umbjóðenda
samhliða þeirri endurskoðun
sem fara mun fram með
haustinu, væntanlega með
nýrri ríkisstjórn og nýkjörnum
þingmönnum á Alþingi.
Stjórn F.F.S.Í. hefur sam-
þykkt aö gerð verði könnun á
vægi sjómannafrádráttar fyrr
og nú. Er að því stefnt að
könnun þessari verði lokið
fyrir næsta sambandsþing.
Til ferskari skýringar og
leiðréttingar er nauðsynlegt
að birta hér á eftir umsögn
Sjómannasambands íslands
um þessi mál, sem fyrir ein-
hvern misskilning í meðförum
starfsmanna Alþingis hefur
verið eignuð F.F.S.Í.. Umsögn
S.S.Í. fylgir hér með.
Eins og þar kemur fram er
farin ákveðin leið viö þennan
útreikning. F.F.S.Í. hefur ekki
enn viðurkennt að standa
skuli þannig að útfærslu sjó-
mannaafsláttarins. Þessi leið
er af S.S.Í. talin sú eina og
réttlátasta i þessu sambandi
og byggist á að jafna upp-
reiknuðum heildarskattfrá-
drætti til sjómanna árið 1985
niður á alla, óháð tekjuskipt-
ingu. Hér koma þvi að fullu
gagni rök Þorkels Sigurös-
sonar vélstjóra forðum. En
hann mælir með þvi að afla-
menn njóti í einhverju sinnar
þekkingar og hæfni. En þegar
minnst er á slikt verður að
hafa það i huga að þeir sem
lagt hafa á sig 5-7 ára nám í
skóla ásamt starfsreynslu til
að þjóna þessum útvegi til
sjós eiga skýlausan rétt á því
að halda a.m.k. óbreyttum
hlut eftir sem áður í komandi
staðgreiðslukerfi.
Þar sem undanfarin ár hef-
ur verið miðað við hundraðs-
hluta af heildartekjum (12%),
verður að gæta vel að því aö
yfirmenn í F.F.S.i. missi ekk-
ert við þessa breytingu, því
hún átti ekki að vera til þess,
heldur aðeins að breyta
greiöslufyrirkomulagi.
Það er von F.F.S.i. að aö-
ildarfélögin og félagar þeirra
hugi að þessum málum og
afli sér gagna til aö leggja
fram ef þörf krefur meö
haustinu.
... að kjarasamn-
ingar fiskimanna
væru lausir ef
gengiö yröi á hlut
yfirmanna viö
skattkerfis-
breytingarnar.
VÍKINGUR 207