Náttúrufræðingurinn - 1938, Blaðsíða 88
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Frá Grænmetisverslun
rlkisins
Ti) þess að kartöflur þær, sem Grænmetisversl
un ríkisins kaupir, verði metnar sem góð og gild
söluvara, þurfa þær að uppfylla eftirfarand
skilyrði:
1. Kartöflurnar verða að vera þurrar og hreinar. (Ath.: Aldrei má hreinsa kartöflur
með því að þvo þær eða bleyta).
2. Kartöflurnar eiga að vera sem jafnastar að útliti og stærð. Allar óvenjulega stórar
vanskapaðar, grænar og skaddaðar kartöflur verða að vera skildar frá. Sömuleiðis
frosnar kartöflur og sýktar.
3. Allt smælki þarf að vera skilið frá, þannig að kartöflur, sem ekki eru meira en 35
millimetrar í þvermál, nemi alls ekki meira en um 5°/0 af vörunni, og að engar
kartöflur séu minni en 25 millimetrar í þvermál,
4. Kartöflurnar eiga að afhendast í 50 kílóa pokum, sem verða að vera þurrir, heili
og þrifalegir. Skal vera vandlega saumað fyrir pokana og gerð á horn til að taka
i, þegar þeir eru handleiknir.
5. Seljendur verða að láta fylgja kartöflunum greinilegar upplýsingar um hvaða af-
brigði (tegund) þær séu. Ef um fleiriu afbrigði er að ræða i sömu sendingu, má
ekki blanda þeim saman. Hvert afbrigði verður að vera vel sérmerkt, bæði með
tegundarnafni og nafni seljanda, svo hægt sé að greina á milli þeirra, án þess að
opna pokana.
6. Auk þess verða seljendur að gefa Grænmetisverslun rikisins aðrar upplýsingar við-
víkjandi vörunni, eftir þvi sem óskað er, og verða má til þess að upplýsa um
heilbrigði kartaflanna, gæði og geymsluþol.