Náttúrufræðingurinn - 1944, Síða 32
134
NÁTTÚRUI RÆfiINGURINN
tegundar, og sáust þeir 2 eða 3 dögum síðar í Leirhöfn. Stóra spóa
þennan hefur Náttúrugripasafnið fengið hjá Kristjáni Geirmunds-
syni. Mál hans voru þessi: Heildarl. 577.0, vængur 297.0, stél 117.5,
nef 132.7, rist 75.0, miðtá-þkló 50.0 og kló 5.7 mm. Þyngd 750 g.
Kyn h.
1943: Samkv. uppl. frá Sigurði Björnssyni, Framnesi við Djúpa-
vog, var þar nokkuð af stóra spóa um mánaðamótin sept.—okt. Héldu
jreir sig með ströndum fram í smáhópum.
35. Skógarsnípa — Scolopax rusticola L.
1942: William F'. Pálsson, Halldórsstöðum í Laxárdal, S.-Þing.,
hefur sent Náttúrugripasafninu nokkrar fjaðrir at' skógarsnípu, sem
hann fann rétt við túnið á Halldórsstöðum 30. jan. Segir William í
bréfi til mín, að auðséð hafi verið, að köttur hafi etið jrar fugl og
hrafnar svo líklega séð fyrir leilunum, [rví að spor (í snjéi) hafi verið
þar eftir kött og hrafna, en ekkert eftir af fuglinum nema nokkrar
ljaðrir.
1943: Á Kvískerjum í Öræfum fundust leifar af skógarsnípu 30. fe-
brúar, og 26. okt. sást jrar skógarsriípa í Breiðamerkurfjalli. Loks sást
þar skógarsnípa í Eystra-Hvammi 31. okt. (Hálfdan Björnsson).
36. Litli hrossagaukur — Lymnocryptes minimus (Briinn.)
Hinn 14. des. 1942 fann Kristján Geirmundsson hálfdauðan litla
lirossagauk á götunni framan við hús sitt á Akureyri. Fuglinn hefur
að líkindum flogið á símavír, því að hann var skaddaður á nefi,
brjósti og væng. Haminn af Jressum fugli hefur Náttúrugripasafnið
íengið hjá Kristjáni, og reyndust mál fuglsins vera sem hér segir:
Heildarl. 212.0, vængur 117.2, stél 47.5, nef 41.0, rist 24.4, miðtá-j-kló
29.1 og kló 5.7 mm. Þyngd 48.7 g. Kyn h .
37. Vepja — Vanellus vanellus (L.)
1942: Hinn 12. marz sáust 2 vepjur á túnunum í Laugarneshverf-
inu í Reykjavík, og var önnur þeirra skotin (Jón Sigurðsson, skóla-
stj.). í Ögri við Stykkishólm sáust 2 vepjur 8. marz, og héldu þær
sig þar í nágrenninu fram eftir mánuðinum (Bergsveinn Skúlason).