Náttúrufræðingurinn - 1944, Side 38
140
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
1940, en 60 þús. smál. í Kyrrahafinu, og var verð á makríl nokkru
hærra þar en í Evrópu (ca. 50—60 aur. kg.).
Sjálfsagt liefur makríllinn oft og einatt slæðzt hingað, þótt eigi sé
það vottfast, en lians er lyrst getið héðan á síðasta tug 19. aldar. Varð
þá vart einstöku liska í Hafnarfirði, Keflavík, Eyjafirði og á Vest-
fjorðum.1) Sumarið 1904 var mikið um hann hér við land.2) Kom
þá hlaup inn undir Sauðárkrók, kringum miðjan ágúst, og fengust
nokkrir í síldarnet og á færi. Fáum dögum síðar gekk hann í stórum
torfum inn allan Hnitafjörð, alveg inn undir botn. Var xeynt að
veiða hann í síldainet, því að menn héldu þarna vei'a síld á ferðinni,
en netin voru of smáriðin, og fengust ekki nema einir 30 fiskar.
Þetta sama sumar veiddist hann einnig í reknet við N.-land; lxann
gekk inn í Eyjafjörð, og við Austfirði varð hans einnig vart.3) Þar
gekk hann í torfum inn á Vopnafjörð og Borgarfjörð, svo að það lítur
út fyrir, að mikið hafi verið um hann, að minnsta kosti á öllu svæð-
inu frá Hrútafirði til Glettinganess. Á Seyðisfirði varð lxans nokkuð
vart sumarið eftir (1905), og á Grundarfirði fengust 24 sumarið
1908.4)
Síðan liitna tók í sjóinn (eftir 1926), hefur makríllinn veiið nær
því árlegur gestur við strendur landsins. Þannig veiddust margir í
snurpunót í Skagafirði sumaiið 1928. Einn veiddist á togarann
Skallagrím í júlí 1929 við N.-land, og annar í ísafjarðardjúpi í ágúst,
og einn fékk „Þórólfur“ við Látrabjarg sama sumar. Auk þess veiddu
Dalvíkingar átta í september þetta sarna ár.5) 1930 hefur mikið hlotið
að vera um liann við Austfirði, því að Jxá fengust margar tunnur
(í ágúst) í síldarnet í Mjóafirði. Sumarið 1934 virtist ennfremur tals-
vert um hann, og fengust þá (16. ág.) 70—80 í lagnet við Keflavík,
og var meðalþyngd þeirra um 500 gr. Þá fékk enskur togari nokkia
tugi í botnvörpu á Sviðinu, og við N.-land vaið lians einnig vart.
Sumarið eftir fengust Jxrír í reknet í Miðnessjó, og 1938 veiddust 70
í einu í Skei'jafiiði, 8. ágúst. Enn er að geta þess að einn (33 cm. hrygna)
fékkst í botnvörpu á „Þór“ innan landhelgislínu í Faxaflóa 17. maí
1939. — Þegar á Jxað var litið, að eigi er liægt að búast við, að öll kurl
1) 15. Særa.: Skýrsla Náttúrufr.fél. 1899—1901, bls. 19.
2) E. Sæm.: ísafold, 24. sept. 1904.
3) 15. Sæm.: Andvari 1903, bls. 130.
1) 15. Sæm.: Fiskarnir, bls. 137.
5) 15. Sæm.: Videnskab. Medd. etc., 102. bindi, bls. 192.