Náttúrufræðingurinn - 1944, Side 86
188
N ÁT TÚRUFRÆÐINGURIN N
kennilegur í Iiáttum sínum. Byrðir lieimilisins eru aðallega látnar
livíla á karldýrinu. Grat'in er liola niður í sand eyðimerkurinnar,
það er lireiðrið og þar geta margir kvenfuglar verpt eggjum sínum.
Karlfuglinn liggur síðan á eggjunum á liverri nóttu, en stundum
geta frúrnar einnig legið á hreiðrinu, en það er þá lielzt á daginn, en
þegar þær nenna því ekki, verður sólarliitinn að annast þær skyldur,
sem náttúran leggur annars vanalega á herðar kvenþjóðarinnar í
fuglaheiminum. í lrverju lireiðri eru vanalega í kringum 30 egg og
livert þeirar er á stærð við 20 hænuegg. Afríku-strúturinn getur ekki
flogið, en hann getur ldaupið hraðar en fráustn Liestar.
Þá er það minnsti fugl jarðarinnar, einn af colibrí-fuglunum í
Iieitari hlutum Ameríku. Hann er ekki þyngri en fimmeyringur og
getur ekki gengið. Fætur lians eru þannig úr garði gerðir, að þeirra
verður engin not á jörðinni. Úr þessu bæta vængirnir, sem skila
fuglinum geysihraða, þannig að hann má heita óvinnandi á flugi.
Hann lifir að nokkru leyti á blómavökva, en auk þess á minniháttar
skordýrum og áttfætlum. Veiðir hann þessi dýr með tungunni, sem er
slímug að utan, þannig að þau loða við hana.
TILKYNNING
Þegar Rit Fiskideildar hófu göngu sína 1939, var til þess ætlast,
að allir áskrifendur greiddu kr. 7.50 á ári, hvort sem mikið eða lítið
kærni út. En styrjöldin hefur gjört það að verkum, að orðið hefur að
takmarka útgáfuna mjög, og hafa aðeins kontið út fjögur rit hingað
til. Af þeirri ástæðu hefur ekki þótt fært að innheimta árgjöldin, og
hala því langflestir áskrifendur aðeins greitt, kr. 7.50 lyrir 1939, en
örfáir kr. 7.50 fyrir 1940.
Með því að ekki er ætlunin að innheimta árgjöldin fyrir 1940
(1941)—1944, og þar sem Norðurlands-síldin er rit, sem kostar kr.
55.00, er eigi unnt að láta þá bók mæta einu árgjaldi. Á liinn bóginn
skal þeim, sem óska þess að eignast bókina, gefinn kostur á að kaupa
hana fyrir kr. 44.00 og verður hún send hverjum þeim áskrifanda að
Rit Fiskideildar, sem þess óskar, eins og greint er frá í auglýsingu
í þessu hefti og vísast því til hennar.
A. F.