Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1955, Page 32

Andvari - 01.01.1955, Page 32
28 Barði Guðmundsson ANDVARI hinir bræðurnir tveir, Skarphéðinn og Grímur, ásamt Njáli, Berg- þóru, Þórði Kárasyni og Þórði leysingja. „En í vefjarstofunni fundu þeir Sæunni kerlingu og þrjá menn aðra.“ (K. 132). Alls eru þá nafngreindir í Njálu átta menn, sem fórust af heimaliði. Hæfir það ágætlega Landnámu, er hún hermir, að Njáll hafi verið inni brenndur við áttunda mann. Jafnframt má setningin: „Alls fundu þeir þar hein af ellefu mönnum“ nokkra undrun vekja. En hún hverfur sem dögg fyrir sólu, er við lítum á hina hliðstæÖu frásögn i Sturlungu, þar sem greint er lrá dánarstöð- um manna í rústunum á Flugumýri. Hún hljóðar þannig: „Þá féll ofan skálinn, fyrst norðan af skálanum, suður um loftið, er í var skálanum. Þessir menn urðu þar undir: ísleifur Giss- urarson og Ketilhjörn bróðir hans, Björn Olafsson, Steinn smiður, Kolbjörn, Ásgrímur, — Guðlaugur piltur, Ketill sútari, Kormákur bryti létust í klefanum. Sokki Ormsson lézt í litlustofu. Páll hét lausamaður einn, er fannst dauður í borðhúsi í stofunni." (I, s. 492). I þessari málsgrein er sagt frá dánarstöðum ellefu nafngreindra manna. Alveg eins og á Bergþórshvoli hvíla sex þeirra undir skála- þekjunni og þeirra á meÖal, svo sem fyrr greindi, tveir af sonum húsbóndans. Má af þessu fara nærri um það, hvers vegna Njálu- höfundur lætur einmitt bein af ellefu mönnum finnast í brunarúst- unum. Nafnaupptalningin í Sturlungugreininni hefur beint huga hans að tölunni ellefu, er hann fór að segja frá beinauppgreftin- um á Bergþórshvoli. Það verður ekki betur séð en söguhöfundur hafi þá litið í Sturlungu sína til þess að rifja upp fyrir sér, hvað þar væri sagt um dánarstaði þeirra, sem fórust í Flugumýrarbrennu. Svo náið sýnist sambandið vera milli Sturlungu og Njálu. Þrátt fyrir öll þau atriði, sem nú hafa verið rakin um einisval Njáluhöfundar, verður ekki sagt að brennulýsing hans sé stæling, gerð eftir frásögninni um Flugumýrarbrennu. Veldur hér miklu um, að hann notar fleiri heimildir en hana, þegar Njálsbrennu er lýst. Auk þess klæðir höfundur gjarna fyrirmyndir sínar í skáldlegan húning. Ágætt dæmi þessa er það, hvernig hann not- færir sér frásögnina af falli Halls Gissurarsonar. I Sturlungu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.