Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1955, Side 38

Andvari - 01.01.1955, Side 38
34 Björn Þórðarson ANDVARJ Guðmundar góða (Sturl. I. 140). Af þessu þykir mega ráða, að Magnús muni eigi hafa verið eldri en svo sem 10 vetra, er Þor- lákur kom í Skálholt, og muni því vera fæddur nálægt 1165. Annars getur Magnúsar fyrst vorið 1186, er hann fór með Þor- valdi bróður sínum vestur í Dali. Var Þorvaldur þá að undir- búa til alþingis mál Yngvildar tengdamóður sinnar um eftirmál Einars bróður hennar. „Þeir Þorvaldur váru átján saman ok gengu allir suðr ok sunnan“ (Sturl. I. 231). Hafa harðindi og snjóar valdið því, að þeir fóru gangandi báðar leiðir. f áðurgreindri tilvitnun segir, að Magnús dvaldist með Þor- láki biskupi „meðan hann vildi þar verið hafa“, en hversu gamall hann var, þegar hann fór þaðan, verður ekki vitað. En meðal tíð- inda árið 1188 er þess getið í annálum, að Magnús Gizurarson hafi farið tvívegis af íslandi til Rípa í Danmörku, en árið áður hafði ekkert skip komið frá Noregi til íslands. Er af þessu auð- sætt, að Magnús hefur verið farmaður mikill og sennilega stýrt sjálfur skipinu. Hvort hann hefur verið eigandi þess eða Skál- holtsstaður, segir ekki. Um farmennsku hefur honum kippt í föðurkyn. Faðir hans fór á fyrri árum sínum oft af landi brott og var betur metinn í Róma en nokkur íslenzkur maður á undan honum. Hann var og um skeið stallari Sigurðar konungs munns. Þá var langafabróðir Magnúsar, Gizur Isleifsson, síðar biskup, farmaður mikill fyrri hluta ævi sinnar og fór eitt sinn ásamt konu sinni til Rómar. Magnús gerði bú í Bræðratungu og kvænt- ist Halldóru Idjaltadóttur og átti með henni tvo sonu, Hjalta og Gizur (Sturl. I. 60). Kemur Hjalti talsvert við sögu Gizurar Þorvaldssonar eftir lát föður síns. Magnús var síðastur eigin- kvæntur biskup í kaþólskum sið á íslandi. Þá skal getið nokkurra atburða þar sem Magnús Gizurarson kemur við sögu um aldamótin 1200. Litlu eftir að Páll biskup Jónsson kom heim frá vígslu 1195, beittist hann fyrir því að afnema það ranglæti, sem átt hafði sér stað bæði af hálfu útlendra manna og innlendra um álnamál. Gaf hann það ráð, að menn skyldu hafa stikur þær er væru
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.