Andvari - 01.01.1928, Blaðsíða 7
Andvari
Jón Magnússon.
1859 — 1926.
Ætterní og J5n Magnússon forsætisráðherra var fædd-
æska. ur ag j AÖaldal í Þingeyiarsýslu 16.
janúar 1859. — Faðir hans var síra Magnús jónsson
frá Víðimýri í Skagafirði, ]ónssonar á Grund í Þor-
valdsdal, Jónssonar á Djúpárbakka (f 1765), Rögnvalds-
sonar á Hámundarstöðum og Öxnhóli, Jónssonar á
Krossum, Rögnvaldssonar á Krossum, Jónssonar prests
Þorgeirssonar á Grund í Svarfaðardal, sem talinn er
sveinn ]óns biskups Arasonar, Steinssonar. Alt merk
bændaætt í út-Eyjafirði, sami karlleggur og Stefáns á
Steinsstöðum.
Móðir síra Magnúsar var Sigríður Davíðsdóttir frá
Krýnastöðum, Tómassonar í Hvassafelli, er var bróðir
Sölva klausturhaldara Tómassonar, föður Sveins lög-
manns. Mannmörg ætt í fram-Eyjafirði og margir af-
komendur, svo sem Sigurjón á Laxamýri, Klemens
Jónsson, sem hefir safnað ættinni, o. fl.
Kona síra Magnúsar, Vilborg Sigurðardóttir, bónda á
Hóli í Kelduhverfi Þorsteinssonar, bændaætt í Norður-
Þingeyjarsýslu.1)
1) Ættartölubrotin hefi eg fengið frá hr. Pétri Zóphóníassyni.