Andvari - 01.01.1928, Blaðsíða 67
Andvari
Flugferöir
65
löndum vorum, og eitt ráðið til þessa er að hefja flug-
ferðir hér innan lands sem allra fyrst.
Auðvitað verður að athuga málið grandgæfilega frá
öllum hliðum, áður en til framkvæmda kemur, en því
fyrr sem það verður gert, því betur oss íslendingum
til handa.
Athuga þarf, í milli hverra staða geti komið til mála
að fljúga. Finna hentuga flugvelli á þessum stöðum og
lendingastaði í milli þeirra. Athuga, hvers konar vélar
mundi hentastar, en það yrðu sennilega vatnsflugvélar
með þeim útbúnaði, að þær gætu einnig lent á landi;
mundi það minnka stofnkostnaðinn, því að þó að slík
vél yrði eitthvað dýrari, sparaðist mun meira við það
að þurfa ekki að gera eins marga flugvelli. Athuga,
hvort fjölga þyrfti veðurathugunarstöðvum, og síðast en
ekki sízt þyrfti að ganga úr skugga um, hvort kleift
væri að halda uppi flugsamgöngum við viðunandi kjör
handa þeim, sem fljúga vildu, en þó þannig, að fyrir-
tækið gæti borið sig sjálft peningalega.
Fyrstu árin mundi tæplega unnt að halda uppi föst-
um samgöngum, nema að sumri til, en það er einmitt
um þann tíma, sem þörfin á þeim er mest. Allir íslend-
ingar kannast við annmarkana, sem eru á samgöngum
vorum innan lands og þann óratíma, sem fer til spillis í
ferðum um landið, svo að ekki sé minnzt á öll þau
óþægindi, sem samfara eru ferðalögum hér, hvort heldur
er á sjó eða landi. Allir sjá, hver munur er á að þurfa
milli Reykjavíkur og Akureyrar að velkjast í minnst tvo
sólarhringa í loptillum og þröngum klefum, innan um
meira eða minna sjóveikt fólk, eða að geta flogið þessa
leið á tveimur tímum. Við skulum fara fimm ár fram í
tímann og hugsa oss leiðina frá Reykjavík til Borgar-
ness, en þaðan landveg til Akureyrar. Um það leyti
5