Andvari - 01.01.1928, Blaðsíða 92
90
Þættir úr menningarsögu Vestmannaeyja
Andvari
Sunnan úr fekkst tæpt hundrað í hlut, úr Klettaskörð-
um 40, Kambinum um 160, og gerði sexæringur ekki
betur en fljóta með það, úr Hákollagili um 90, Hákoll-
um 120, Dufþekju (eða Dufþaksskor) 260—300 í hlut,
tók það oftast 2 daga að aðsækja Dufþekju, var þá
fuglinn drepinn þar fyrra daginn og sóttur hinn síðara;
loks fóru menn í snatt 8. daginn, og fekkst þá um 40
í hlut. Nú á síðustu árum hefir fýlatekjan úr Heima-
kletti minnkað mjög, eins og annarstaðar í Vestmanna-
eyjum, mun vera allt að því helmingi minni en um
aldamótin.
Suðurey eiga Vilborgarstaðamenn annað árið, en
Kirkjubær hitt og fekkst þaðan tæpt hundrað í hlut í 10
staði. Nú munu fást alls um 300 fýlar úr Suðurey á ári.
Klifið heyrir undir Vilborgarstaði og Elliðaeyjarjarðir.
Úr því fengust um aldamóti um 3000 fýlunga árlega,
nú um 1000. 4 daga var verið að aðsækja Klifið. Fyrsta
daginn var farið í Vondu tærnar, annan vestur úr Klifi,
þriðja daginn sunnan í og í Benzanef, fjórða daginn í
löngu ofanferðina og Bláskoruhvannstóðið.
Elliðaeyjarjarðir eiga hálfar annað árið Elliðaey, það-
an í 10 staði um 60 í hlut, og hitt árið Sám í Hellis-
ey; það an fengust í hlut á annað hundrað af fýl,
nú talsvert minna. Einnig eiga Elliðaeyjarjarðir Stór-
höfða, þaðan í hlut í 17 staði, 16 jarðarhlutir og 1
gönguhlutur, rúmt stórt hundrað, nú munu vera þaðan
um 40 í hlut.
Kirkjubæjarjarðir. Undir þær liggur Brandurinn, það-
an var um 300 í hlut í 9 staði, 2 aukamenn fengu og
50 hvor af óskiptu, og Geldungurinn, úr honum fengust
að meðtöldum Drangnum um 200 í hlut. Nú fæst tæp-
lega helmingur á við þetta úr þessum eyjum. Úr Sæfjalli,