Andvari - 01.01.1928, Blaðsíða 23
Andvari
]ón Magnússon
21
færu með utanríkismál vor og að nokkuru með strand-
varnirnar hér við land.
En að hinu leytinu fengu Islendingar fram-
18‘ gengt hinum merkilegu ákvæðum í 18. gr.
laganna sambandslaganna. Þeim til skilningsauka,
sem óljósa þekking hafa á málinu, set
eg hér þessa grein:
»Eftir árslok 1940 getur ríkisþing og alþingi hvort
fyrir sig hvenær sem er krafizf, að byrjað verði á samn-
ingum um endurskoðun laga þessara.
Nú er nýr samningur ekki gerður innan 3 ára frá
því að krafan kom fram, og getur þá ríkisþingið eða
alþingi hvort fyrir sig samþykt, að samningur sá, sem
felst í þessum lögum, sé úr gildi feldur. Til þess að
ályktun þessi sé gild, verða að minsta kosti 2h þing-
manna annaðhvort í hvorri deild ríkisþingins eða í sam-
einuðu alþingi að hafa greitt atkvæði með henni, og
hún síðan vera samþykt við atkvæðagreiðslu kjósenda
þeirra, sem atkvæðisrétt hafa við almennar kosningar til
löggjafarþings landsins. Ef það kemur í ljós við slíka
atkvæðagreiðslu, að 3/4 atkvæðisbærra kjósenda að
minsta kosti hafi tekið þátt í atkvæðagreiðslunni og að
minsta kosti 3/4 greiddra atkvæða hafi verið með samn-
ingsslitum, þá er samningurinn fallinn úr gildi«.
M'I 1 I ^eð ^essu var þá endir bundinn á hina
langvinnu stjórnmáladeilu íslendinga og
Dana. Island varð viðurkent »frjálst og fullvalda ríki«.
Það verður nákvæmlega jafnrétthár aðili eins og Dan-
mörk eða eins og það er orðað í athugasemdum nefnd-
arinnar við sambandslagafrumvarpið: »Sambandsákvæði
þau, er hér greinir, verða til fyrir samkomulag, þar sem
tveir jafnréttháir aðiljar semja um ákveðið samband sín
á meðal og báðir binda sig aðeins samkvæmt sjálfs sín