Draupnir - 01.05.1903, Blaðsíða 29
DRAUPNIR.
61
klaustrið út, og setja annan þar inn til bráða-
byrgðar. Svo þegar því er lokið, þarf ég að
boða Steini presti stefnu. Og svo hef ég enn-
þá eittaðbiðja þig fyrir, áður ég geng til rekkju
í skauti Guðmundar hins góða“, og leit um leið
til Gottskálks nærri því bænaraugum, sem eng-
inn hélt að hann ætti til í eigu sinni: „Þú ert
ennþá tiltölulega ungur frændi, og skyldi svo
fara, að mín missti við, þá minnstu þeirra harma,
sem Sigmundur prestur Steindórsson og synir
hans hafa bakað heilagri kirkju og mér, ogþætti
mér ekki ómaklegt, þótt Jón Sigmundarson yrði
fyrir því".
„Auðnan ræður, herra, hvort hlutskifti mitt
verður svo ypparlegt, að ég verði þess megn-
ugur, en minnugur skal ég verða þessara orða
yðar“, svaraði Gottskálk.
„Þá er vel lofað", kvað biskup, bauð frænda
sínum góða nótt með lófataki, og gekk svo miklu
ánægðari til hvílu sinnar, erþessari ógöfugu bæn
var svo vel svarað.
„Hér muntu konung upp fæða“.
Ólafur helgi.
„Minn hugur er kátur og hjartað er létt,
og himininn víður og fagur".
St. Th.
Kotbærinn Grýta er í Öngulstaðahreppi í
Eyjafirði og stendur á hól undir holti, sem sum-