Draupnir - 01.05.1903, Blaðsíða 158
Itjo
DRAUPNÍR.
asta skipinu. Hann hamaðist yfir því, að kom-
ast á vald óvinanna, og þar eð hann sá marga
af innbúum Naupaktos-borgar niður við strönd-
ina, hrópaði hann þetta til þeirra: „Þér metin
frá Messenia! Getið þér með köldu blóði horft
á, að skip þau, sem voru send borg ykkar til
varnar, falli í hendur fjandmannannaf Hjálpið
oss til að frelsa þetta eina skip! Ef við losn-
um, þá skulum við ekki verða lengi að bjarga
hinum".
Þeir sem voru á landi fóru að ráðslaga sín
í millum. Eftir það óðu þeir út í sjóinn, til
að bjarga landsmönnum sínum. Undir eins og
skipið losnaði reri það til þess næsta, og þeg-
ar þau voru bæði orðin laus, varð þeim auð-
velt að ná hinum, svo Spartverjar héldu að eins
einu aþensku skipi eftir.
A meðan á þessu stóð, hafði Formion haldið
áfram með hinn part flotans. En þegar hann
sá, að allt lenti í handaskolum fyrir Spartverj-
um, réðst hann á þá og tók af þeim 6 skip.
Aþenumenn hófu upp sigurmerki og hæddust
að því, að Spartverjar gerðu það sömuleið-
is. Allir hrósuðu Hippyllos, því hann hafði
ekki einungis fengið Messeníumenn til að hjálpa
þeim, heldur hafði hann líka barist hraustlega
og drepið einn foringjann af óvinaskipunum, og
það bróður Lýkofrons sjálfs, sögðu menn. Þeg-
ar Hipyllos kom til Aþenubogar lá faðir hans