Draupnir - 01.05.1903, Blaðsíða 43
DRA.UPNIR.
75
um og lausum aurum undir kirkjurnar, klaustr-
in og sjálfan sig, því nálega hefir enginn biskup
á Islandi látið eftir sig eins mikla auðlegð og
hann, og hann vann klerkastéttinm meira gagn en
flestir undan- og eftirmenn hans orkuðu í þau 28
ár, sem hann sat að stóli, og fékk svo lokið sín-
um mörgu og stóru málssóknum á furðu friðsaman
hátt, eftir því sein þá gerðist. Báðir fyrirrenn-
arar hans, Sveinn Pétursson spaki og Magnús
biskup Eyjólfsson sátu skamma stund að stóli,
Sveinn í 9 ár, en Magnús í 13, og höfðu hvor-
ugir þeirra verið neitt líkir atkvæðamenn.
Sveinn skildi við staðinn stórskuldugur, en
spakastur var hann allra Skáholtsbiskupa. Á
meðal annara spásagna hans voru spár hans um
Skálholtsbiskupa, þá er eftir hann myndu koma.
Sá næsti eftir sig, sagði hann að myndi ekki
lengi sitja að völdum. Það var orð og að sönnu,
því Magnús, eftirmaður hans, varð bráðkvaddur
við Brúará eftir 13 ára dvöl. Sá næsti þar á
eftir myndi mest grjót flytja að staðnum, og sá
biskup var Stefán, og var þegar farið að brydda
á grjótfíkn hans, því hann lét sækja það langt
að og var nú farinn að láta hlaða hinn svo-
nefnda steinboga austur yfir mýrina að Tíða-
skarði, sem mótar fyrir enn þann dag í dag.
Fleiru spáði hann og um eftirmenn sína, sem
þótti síðar rætast og um siðaskiftin og endaði
með því að segja, að staðurinn hefði eflzt og