Draupnir - 01.05.1903, Blaðsíða 107
DRAUPNIR.
139
„Þú varst að tala við mig um daginn, Jón,
að þig langaði að komast í haustvinnu, og nú
kem ég til að láta þig vita, að Grímur Pálsson
vill taka léttapilt um tíma, svo vinnumenn hans
geti sinnt öðrum störfum".
Þessu tók Jón fegins hendi, en Elín sakað-
ist um, að hann væri svo óþroskaður og væri
fastandi, en varð fegin í aðra röndina. Jón
barði niður mótbárur hennar, kvaðst vera nógu
stór og sterkur til hvers sem væri, og endaði
með því að segja: „Eg fer, og það samstundis".
„Hvaða leið ætlar þú að fara, Jónsi?“, spurði
Málmfríður. „Fyrst ætla ég mér niður að Eyja-
fjarðará og svo yfir hana, ef ég get, og svo inn
í Möðrufellshraun að sjá reyniviðinn, ef ég get
koinið því við, því gleðin og vinnan ættu að
haldast í hendur. Og svo að öllu þessu loknu
ætla ég yfir að Möðruvöllum að semja við Grím
bónda, og í nótt ætla ég að koma aftur og búa
mig til fararinnar. Verið þið sælar“. „Drekktu
mjólkurlöggina áður, svo þú farir ekki fastandi",
kallaði Elín, en hann heyrði það ekki, heldur
hljóp út, tók gönguprik sitt og lagði af stað.
Þetta var árla morguns. Elín settist aftur við
lyppulár sinn ög þær Málmfríður ræddust við,
fyrst um landsins gagn og nauðsyjar, svo um
veðráttu og ástand manna í héraðinu. Elín
sagði: „Þið þurfið ekki að búa lengi við veður-
hörkuna hérna fyrir norðan, Fríða mín, því að þið