Draupnir - 01.05.1903, Blaðsíða 99
DRAUPNIR.
131
leitnin viku alloftast fyrir djúpri og ígrundandi
alvöru.
„Skjótt þykki mér margt skipast
kunna“,
Grettir.
I hálum skóla heims að von
höllun segi gerða,
einn fær „præ“, en annar „non"
og ýmsir „reject" verða.
Tíminn hefur ekki verið aðgerðarlaus í þau
þrjú ár, sem liðin eru frá síðustu atburðum.
Ólafur biskup Rögnvaldsson fór utan sama
sumarið og plágan hófst nyrðra. Hann ráðstaf-
aði eigum sínum öllum og gaf Hólakirkju og
staðnum megin þeirra, og eins og samþykkt var
á prestafundinum á Víðivöllum um vorið, setti
hann tvo presta, Jón Þorvaldsson frá Höskulds-
stöðum og Guðmund prest Jónsson fyrir umsjón-
armenn staðarins í fjarveru sinni. En hann kom
þangað aldrei aftur, því 15. júlí 1495 var hann
kvaddur úr heimi þessum, staddur í öðru landi,
fráskilinn öllum sínum blóðpeningum og upp-
hefð á fund hins réttláta dómara. Gottskálk
Nikulásson, frændi hans, var aftur kjörinn til
biskups í stað hins látna, og sigldi hann þegar
eftir vígslunni, en kom eigi svo fljótt aftur, og
var staðurinn í umsjá hinna fyrnefndu manna í
millibilsástandinu, eða réttara sagt, hann var í
útnsjá allra presta, prófasta og ábóta í Norður-
stiftinu, með því að þegar úr einhverjum vandamál-
9*