Draupnir - 01.05.1903, Blaðsíða 100
132 DRAUPNIR.
um átti að ráða, voru þau rædd og ráðin á
prestafundum.
Jón Sigmundarson, sonur Sigmundar prests
Steindórssonar og Solveigar Þorleifsdóttur var
sýslumaður í Húnavatnssýslu, og kvæntur á ný
Björgu systur Jóns prests Þorvaldssonar staðar-
umsjónarmanns, og var því ekki langt stórræð-
anna að bíða milli hans og Gottskálks biskups.
Asgrímur var ábóti á Þingeyrarklaustri, en Ein-
ar Benediktsson á Þverá, og var va'inkunnur
maður eins og Einar ísleifsson nafni hans. Finn-
bogi var lögmaður og Pétur Trúls hirðstjóri.
í Skálholtsstifti höfðu margar og stórar breyt-
ingar orðið, en Stefán biskup sat að völdum
sínum. Ögmundur Pálsson var orðinn honum
mjög handgenginn, og sendi biskup hann öðru
hvoru til Noregs að sækja fyrir sig við og vöru,
því Skálholts- og Hólabiskupar sóttu þangað
nauðsynjar sínar á skipum staðarins. Ríkismenn
og fleiri, sem áður lifðu kyrlátu lífi, bárust nú
á banaspjótum út af örfum látinna ættingja, klög-
uðu í héraði fyrir biskupunum, lögmönnum og
lógréttu — já, stundum fyrir sjálfum kounginum,
fengu samþykki hans annað veifið en voru rétti
sínum ræntir hitt, og svona var hver höndin upp
á móti annari í orðsins fyllstu merkingu. Því
þegar hér er komið sögunni, var hin svoneínda
síðari plága um garð gengin, og hinir voðalegu
valkestir, sem hún hlóð í kringum sig um allt