Draupnir - 01.05.1903, Blaðsíða 36
68
DRAUPNIR.
um hana, svo sá hann skráðbúna presta og
heyrði fagran söng, og honum fannst þetta svo
fagurt og hátíðlegt, að hann hefði gjarnan vilj-
að vinna til að sjá það aftur, þótt það hefði
kostað hann meira. Því hann var þá að eins
fimm ára gamall, og sá ekki nema ytri hlið
hlutanna, og þegar hún var girnileg, var hann
ánægður.
A meðal þeirra, sem komnir voru að Þverá,
var Gottskálk prestur Nikulásson, til að athuga
ástand klaustursins og taka það út eftir milli-
bilsábótana og eftir ráðstöfun Ólafs biskups Rögn-
valdssonar. Sömuleiðis voru þar viðstaddir klaust-
urstjórinn frá Möðruvöllum og margir prestar,
og ætluðu þeir að iúka þar störfum sínum dag-
inn eftir í góðu næði. Gottskálk sat út við
gluggann á munkastofunni í sínum eigin hug-
renningum og horfði út, á meðan kyrrð var að
komast á eftir heimreiðina. Sá hann þá hvar
drengur var að ganga á miíÍum hestanna í rétt-
inni, og var ýmist að skoða upp í þá, hvernig
þeir væru tenntir, eða bisa við að taka upp
lappirnar á þeim, til að sjá, hvernig þeir væru
járnaðir. En það tókst nú ver, hestarnir vissu
við hvern þeir áttu, og hreyfðu ekki lappirnar',
en þegar það tókst ekki, hversu sem hann bis-
aði við það, gekk hann til hliðar, stakk hönd-
unum í síðurnar og virti hestahópinn fyrir sér
með svo sjáanlegum sjálfstæðissvip, að GottskálU