Draupnir - 01.05.1903, Blaðsíða 151
DRAUPNIR.
183
mál þitt, Jón minn, og komdu nú inn til mín,
því ég hef nokkuð áríðandi að tala við þig um“.
Þegar ábóti var kominn aftur inn til sín og
seztur, hóf hann mál sitt við Jón á þessa leið:
„Hér kom sendimaður í kvöld frá Gottskálk
biskupi með bréf til mín þess efnis, að hann
biður mig að senda sér samstundis einhvern
vel menntaðan mann, helzt prestsefni, sein hann
þykist svo mjög þurfa til ýmsra framkvæmda,
því honum þykir margt hafa farið aflaga á staðn-
um síðan hann sigldi. Hann sendi manninn
gagngert til mín með bréfið, sem merkir það, að
hann vill fá skjóta úrlausn, því hann er ekki
vanur^að vera vonbiðill nokkurs manns, maður-
inn sá. Og ég hef ályktað að senda þig til
hans, því ég hef engan jafnhæfan þér til þess,
þótt þú sért ungur, og þá verður þú að fara
héðan með morgninum, því biskup segist bíða
svarsins frá mér með óþreyju".
Jóni hnykkti við, og ábóta sýndist hann
taka góð svipbrigði. Samt sagði hann : „Má ég
ekki kveðja móður mína?" „Nei, það þori ég
ekki að leyfa þér. Svo höfum við Elín orðið
samþykk um það, að ég skyldi sjá fyrir ráði
þínu; en ég ætla að gefa þér nokkrar lífsreglur
í veganesti, eins og Túllus prestur forðum gaf
Núma, áður en hann fór til Rómaborgar. Legðu
alla stund á að þóknast Gottskálki biskupi, því
það verður þér til gæfu, en helzt í því, sem er