Draupnir - 01.05.1903, Blaðsíða 157
DRAÚPNIR.
i§9
frá sér, að hún valt út að súlnagarðshellugólfinu.
Frá þessu augnabliki lagði hún á hann grimm-
asta hatur. O.g þar eð faðir hans hneigðist að
hennar vilja, stóð Hipyllos einmana og varð
við það staðfastur og ákvarðaður í lunderni sínu,
en ei að síður varð hann að þola margt mis-
jafnt. Seinast fann Kleobule upp á því, að segja
að hann umgengist drykkjumenn, og fékk föð-
ur hans til að láta hann fara á flotann, sem sam-
anstóð af 20 skipum, og sem Formion hafði
til að vakta mynnið á Korintuflóanum, síðan
fyrsta árið eftir að stríðið byrjaði. Hipyllos
kom á flotann, þegar hann lá hjá Antirrhion
beint á móti peloponnesiska flotanum. Honum
fannst einkennilegt, að vera kominn svo nærri
óvinunum, að hann gat heyrt stríðsöngva Spart-
verja, og séð glampa á sverð og spjót þeirra í
sólargeislunum. Allir, sem voru á flotanum, töldu
sér sigurinn vísan, af því að þeir höfðu skömmu
áður yfirunnið kerentiskann flota, sem var meira
en helmingi stærri en þeirra. Það þurfti heldur
ekki lengi að bíða eftir stríðinu. Einn morgun
snemma reru Spartverjar (Peloponnesiarnir) inn
í flóann gagnvart Naupaktos, borg, sem stóð í
sambandi við Aþenuborg. Og til þess að lið-
sinna borginni, flýtti Formion sér á eftir Spart-
verjum, en þeir beygðu þá allt í einu af, og að-
skildu með því flota hinna, og náðu með því
níu öftustu skipunum. Hipyllos var á næst aft-