Menntamál - 01.04.1937, Page 27

Menntamál - 01.04.1937, Page 27
menntamál 21 Umbun er því gagnstæð refsingu. Hún hefir þa'ð lilut- verk að livelja barnið til að gera það sem gott er og eftir- sóknarvert. A sama hátt og vanþóknunin, ávítunin og lastið er hinn siðferðilegi kjarni refsingarinnar, cr viður- kenningin, uppörvunin og lofið siðferðilegur kjarni um- bunarinnar. Eflir siðferðilegu mati voru á orðum og athöfnum, skiptum vér þeim i þrjá aðalflokka: Það,sem ervont,það sem er leyfilegt og það sem er gott. Til þess að barnið verði félagsleg vera, ríður þvi mest á, að það forðist að gera það sem vont er og skaðsamlegt. Án þessa skilyrðis \æri allt félagslif og samlíf manna óhugsandi. Við sum- um þessarra afbrola liggja ákveðnar, þungar lagarefsing- ar. En golt framferði og jafnvel siðferðilegur hetjuskap- ur er aftur á móti afarsjaldan verðlaunaður. Menn verða að láta sér nægja góðan orðróm, gott mannorð, lof, tiltrú, ást og virðingu samborgara sinna í þeim efnum. Fram- angreindar ástæður liggja til þess, að nútíma uppeldis- fræði verður líðræddara um refsingar en laun. En í sjálfu sér er hinn siðferðilegi kjarni launanna, nefnilega uppörv- unin til góðra verka, alveg eins þýðingarmikill og liinn siðfcrðilegi kjarni refsingarinnar: ávítunin. Maður, sem aðeins forðast bið illa. en sækist ekki eftir liinu góða, myndi enganveginn samsvara mannsliugsjón vorri nú á dögum. Þeir, sem einkum bafa beitt umbun og verðlaunum i uppeldisaðferðum, eru Jesúítarnir. Þeir voru um eitt skeið frægir um allan lieim fyrir skóla sina^ en frckar þóttu þeir ala upp duglega menn en góða. Þessi aðferð þeirra, að beita aðallega umbun og verðlaunum til að hvetja nem- endurna, liefir j)ótt ærið viðsjárverð. Þykir hætt við, að hún ali upp í mönnum kappgirni og samkeppnisanda úr hófi fram, livetji menn til að komast til valda og metorða sneð öllu mögulegu móti, leggi meira upp úr því að sýn- ast en vera. Upp á Jesúítana er málshátturinn heimfærð-

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.