Menntamál - 01.12.1938, Page 14
76
MENNTAMÁLr
var fljólur ti 1 þess að tryggja sér starfskrafta hennar eftir
þá atlmrði, sein gerðust i Austurriki í vetur. Og er þess
að vænta, að hún fái miklu afrekað enn, og að árangurinn
af starfi hennar niegi berast sem viðast.
Ármann Halldórsson.
Skriftln og skriftarkennslan.
Vorið 1937 fór fram landspróf í skrift harna á aldrin-
um 10—14 ára.
Var verkefnið samið að tilhlutun fræðslumálastjóra og
endursent honum eflir prófið til athugunar. Fól fræðslu-
málastjóri siðan þrem mönnum, þeim Magnúsi Ástmars-
svni, Jóhannesi úr Kötlum og undirrituðum, er var for-
maður nefndarinnar, að yfirfara próflausnirnar, samræma
einkunnirnar, semja skýrslu um árangur livers skóla og
skólahverfis og greina frá þeim staðreyndum, sem prófið
virtist leiða í ljós. Auk þess átti að búa úl mælikvarða i
skrift fyrir barnaskólana, ætlaðan einkum lil stuðnings
kennurum við einkunnagjafir. Eru nú i)lögg þessi nýlega
útkomin og hefur seinkað í prentun miklu meira en ætlað
var. Mun ég nota tækifærið og láta fljóta í kjölfarið
nokkrar hugleiðingar á víð og dreif um skrift og kennslu
liennar.
Skyldurækni og samvizkusemi eru meðal þeirra eigin-
leika, sem flestir óska sér. Koma þeir kostir fram á marga
lund hjá mönnum og meðal annars í því að vinna öll
störf eins vel og liægt er og taka eigi önnur störf að sér
en þau, sem þannig er hægt að leysa af hendi. Barnakenn-
arar vilja vera meðal jjeirra, er þannig vinna verk sín.
Þeir vilja afla sér sem mestrar og beztrar þekkingar í
jieim fræðum, sem þeir taka að sér að kenna öðrum, en