Menntamál - 01.12.1938, Side 70
132
menntamál
hvorki nefnt í hlöðuni eða útvarpi, 0« enn síður verði
tkráð á spjöld sögunnar.
Stundum er þessara manna getið i sambandi við hinn
mikla lokadag' þeirra, en eflir lilla stund eru þessi ókunnu
nöfn gleymd um leið.
Ég ætla að gela hér þriggja kennara, sem allir eru að
visu i fullu fjöri enn. en í tilefni af því að þeir létu allir
af kennslustörfum s. 1. liaust eftir langa og dygga þjón-
ustu, en þessir kennarar eru: Ingimar Eydal, Akureyri,
Jón Kristjánsson, kennari í Hrafnagilslireppi, Evjafirði, og
Ehiar G. Jónsson, kennari i Glæsihæjarhreppi, Eyjafjarð-
arsýslu.
Ingimar Eydal úlskrifaðist úr gagnfræðaskólanum á
Möðruvöllum vorið 1895 og var þá þegar ákveðinn i að
leggja fyrir sig kennslustörf; var hann þá 22 ára að aldri.
Nær óslitið allan þennan tíma síðan hefir liann gefið sig
við barna- og unglingafræðslu. Veturinn 1901—’02 var
hann við nám í Skotlandi, og veturinn 1905—’06 stundaði
hann nám við lýðháskólann í Askov. Þaðan kom hann f 1111-
ur áhuga og eldmóði, sem hann hefir húið að lengi síðan.
Fyrstu árin stundaði hann unglingakennslu, einkum í
Saurbæjarhreppi. Veturinn 1902—’03 var liann heimilis-
kennari á Þúfnavöllum í Hörgárdal, og veturinn 1901 -’05
heimiliskennari á Akureyri.
Hauslið 1906 selti Magnús kaupmaður og hóndi á Grund
i Eyjafirði á fót unglingaskóla, og réði Ingmar sem kenn-
ara að skólanum. Við skóla þennan voru kenndar almenn-
ar gagnfræðanámsgreinar, og var það hugmvnd Magn-
úsar að stofna fastan unglinga- eða lýðskóla, og ])að nuin
einnig liafa verið draumur Ingimars að fá nú tækifæri til
að notfæra sér þá þekkingu og þann auð, sem hann hafði
drukkið í sig frá himun dönsku lýðháskólum. En liér voru
þeir langt á undan sínum tíma, Magnús á Grund og Ingi-
mar, og skólinn stóð aðeins í 2 vetur. En þessa tvo vetur