Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1920, Side 31

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1920, Side 31
ÍÐUNN1 Skáldið og konan hans. 269 með ofsalega tannpínu — vildi ekki fruin gera svo vel og gefa henni ofurlítið af konjaki? Veikindi elda- buskunnar vekja ævinlega meiri umönnun í mannlegu eðli en veikindi nokkurs annars af vinnufólkinu. Samúð frúarinnar tók til starfa — ég var kominn úr hættunni! »Naumast liöfðu dyrnar lokast þegar merkið kom frá bjöllunni. »,Golt kvöld', sagði röddin. ,Svo að þér eruð liér lil að hitta mig‘. »,Gott kvöld', sagði ég. ,Eg vildi feginn fara lengra, til þess að hitta yður‘. »,þakkið þér fyrir, að fundarstaðurinn er í ibúð yðar — hlustið þér á, hvað rignir! Verið þér ekki að þessu og kannist þér við það, að þér hafið talið yður þess sælan að fá að vera kyr heima, þegar hann fór að rigna! Til allrar hamingju get ég verið riddara- legur án þess að bleyta mig, hafið þér sagt við sjálf- an yður. Sannleikurinn er sá, að ég er einstaklega nærgætin við yður — þér fáið að vera þur, þér eyðið engum tíma í að komast til mín, og þér þurfið ekki einu sinni að hafa fyrir því að skifta um frakka*. »,það er einstaklega makindalegt í frásögninni', sagði ég; ,en það er einn galli á því öllu — ég sé yður ekki'. »,Það getur verið enn meiri nærgætni af mér! Eg kann að vera ófús á að reka ástæðulausar ímyndanir yðar í útlegð. Er ekki líklegt, að ég sé ólagleg — eða að minsta kosti roskinleg? Eg kann jafnvel að vera kvenrithöfundur, með blek á fingrunum. Ann- ars hefi ég lesið eina bókina yðar í annað sinn síðan í gærkveldi'. »,Ó, þér vitið nú, hvað ég heiti? Mér þykir vænt um að vera orðinn meira en símanúmer í huga yðar. Má ég spyrja, hvort við höfum nokkurn tíma hizt?‘

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.