Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1920, Blaðsíða 69
ÍÐUNN]
Ritsjá
307
skyldar hvor annari, að þær sóma sér naumast hvor í
annarar búningi. Okkur finst t. d. æði skrítið íslendingum
að sjá »Elgömlu ísafold« á wdönskum húningia og vafamál
hvort þýða hefði átt það kvæði vegna Dana sjálfra. En alt
er þetta í góðri meiningu gert, og því ber oss að flytja
þeim, sem að þessu liafa staðið, kærar þakkir fyrir.
Páll Eggert Ólason: Jón Arason (doktorsritgerð).
þetta er fyrsta doktorsritgerðin, sem út liefir komið á
íslandi og varin hefir verið við íslenzkan háskóla. Ritið er
bæði stórt og myndarlegt, fullar 450 bls. að stærð, og þó
að eins fyrsti þáttur mikils ritverks um siðaskiftalímana
og bókmentir þeirra. Hér er þvi all-myndarlega af stað
farið.
Málið á bókinni er gott, þótt nokkuð sé stillinn lang-
dreginn með köflum. En um sjálfa meðferð efnisins er það
að segja, að ritið er ekki laust við óþarfa endurtekningar
og hálf-leiðinlegar upptalningar, eins og t. d. í kallanum
um jarðakaup Jóns Arasonar og víðar. Ymislegt mun þó
leiðrétt af því, er eldri sagnaritarar hafa lialdið fram og
yfirleitt gætir mikils sjálfstæðis hjá höf. En tilfinnanlegasti
gallinn virðist mér sá, að hér er of fljótt yfir sögu farið
og sumstaðar ekki lagst nógu djúpt til þess að fá sem
skýrasta og réttasta mynd af söguhetjunni. Jón Arason
heíir verið stórbrotinn maður, en ekki göfugur að eðlis-
fari og óvíst, hvort tóm trúareinlægni hefir knúð hann til
að halda fast við hinn gamla sið. Eða því hreyl'ði liann
sig ekki til neins, meðan Gizur biskup lifði? Samt sem
áður varð liann málsvari lands og þjóðar gegn konungs-
valdinu og varð vel við dauða sinum, og því inegum vér
íslendingar tigna hann. Hann var vikingssál í biskups-
skrúða. Á. H. D.
Jón J. Aðils: Einokunarverzlun Dana á íslandi
1602—1787. Útgefandi: Verzlunarráð fslands. Reykja-
vik 1919.
í inngangi þessa mikla rits skýrir höf. stuttlega frá verzl-
un Hansastaða hér við land og samkeppni þeirra og skær-
um við Englendinga og því næst frá viðleitni Danakonunga
að stemma stigu fyrir verzlun hvorratveggja og draga hana