Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1920, Blaðsíða 71
IÐUNNH
Ritsjá.
309
Annar meginpáttur ritsins »Verzlunarhættirnir« í 10 köfl-
um 259.—616. bls., er einkar fjölbreyttur aö efni og ber
vitni um frábæra elju höf. og víðtæka þekkingu hans á
efni pví, er hann ritar um. Raunar kunna aö vera skiftar
skoðanir um, hvort sumt af pví, sem hann tekur fram í
köflum pessum, heföi ekki sakir heildaryfirlitsins átt frem-
ur heima í sérstökum köflum (»exkurser«) aftan við bók-
ina, svo sem útdráttur af kærum og dómum, upptalning
kaupmanna, sem fóru með umboð höfuðsmanna og fógeta,
meðan hinir siðarnefndu voru erlendis o. s. frv. En að
öllu samanlögðu heflr páttur pessi margar stórmerkilegar
nýungar að geyma, er allur porri íslendinga hefir, sem
vonlegt er, ekki vitað nein deili á til pessa; ná pau ekki
að eins til verzlunarsögu vorrar, heldur einnig til menn-
ingarsögunnar yflrleitt; en i stuttum ritdómi eru engin tök
til pess að gera grein fyrir peim.
Að siðustu skal vikið nokkrum orðum að niðurlagi rits-
ins: »Einokunin frá ýmsum hliðum — umbótaviðleitni —
losað um verzlunarböndin« 619.—658. bls. í kalla pessum,
sem gjarnan hefði mátt vera töluvert lengri og ítarlegri,
leitast höf. við að skoða einokunarverzlunina eins óvil-
halt og honum er unt, frá sjónarmiði konungs og Dana
annarsvegar og íslendinga hins vegar.
Aftan við kaflann eru prentuð 8 fyigiskjöl og all-ítarlegt
registur.
Rit petta er árangurinn af margra ára vísindalegri
starfsemi liöf. og er vafalaust hið merkasta sögurit, sem
birzt heflr á islenzka tungu síðan Landfræðissaga íslands
eftir Porv. Thoroddsen kom út. Auk fjölmargra prentaðra
og óprentaðra hcimilda, sem eru mjög misjafnar að gæð-
um, eins og eðlilegt er, hefir höf. t. a. m. í innganginum
stuðst við beztu pýzk heimildarrit um verzlun og við-
skifti Islendinga og Rjóðverja, sem hér eru fáanleg. En
auðvitað hefir hann ekki sakir ófriðarins rnikla getað not-
að hið merka verðlaunarit Walter Xogcls: Geseliichte
der deutschen Seeschi ffahrt, I. Rand, Berlin 1915.
Aðalkostur rits pessa er pó að vorum dómi sá, að höf.
hefir ritað söguna eins satt og rétt og heimildir hans leyfa.
En pað er miklu meira vandaverk en margur liyggur, par
sem einokunarverzlunin danska heíir um marga tugi ára