Kirkjuritið - 01.01.1944, Page 49

Kirkjuritið - 01.01.1944, Page 49
Kirkjuritið. Kristindómsfr. barna og unglinga. 43 það mvndi reynast, þar sem því yrði við komið, að þess- ir sérkennarar væru kandidatar í guðfræði, er jafn- framt liefðu stundað nám í uppeldisfræði. Til þess að meiri festa og samhengi yrði í slarti þessara sérkennara og árangur betri, myndi það vænlegt, að kristindómsfræðslan færi fram i ákveðinni stofu eða stofum, þar sem væri harmóníum, bibliumyndir. líkan eða uppdráttur af Landinu helga og annað fleira, sem yrði stofunni til prýði og gei'ði hana vistlega. Ætti hún helzt að vera einskonar kapella, heilagur staður, er lað- aði hugi barnanna og kennarans til tilbeiðslu i anda <xg sannleika. V. Á skólaárum barnanna þarf að haldast náin sam- vinna milli pi'ests þeirra, kennara og foreldra. Þessir aðiljar verða allir að leggjast tx eitt að vernda og efla hristnilif þeirra. Þáttur prestsins, hvgg ég, að sá verði heilladrýgstur, að hann haldi barnaguðsþjónustur og sunnudagaskóla 1 prestakalíi sinu og laði þangað börnin sem yngst. Til - aðstoðar sér velji hann kennara barnanna, ef kostur er. i^ezt mun reynast að skipta börnunum i flokka eftir aldri og þi-oska og hafa meir sunnudagaskólafvrirkomu- lagið. Við það vex einnig aðstoðarstai'f kennaranna. Um fyrirkomulag segir i nýjustu helgisiðabók okkar, og hef- ir það gefizt vel í sunnudagaskóla guðfræðisdeildar Há- skólans. Þó mun heppilegra, að þau oi’ð, sem töluð eru hl allra barnanna i sameiningu, séu flutt áður en hópn- um er skipt. Sumir kurina að ætla, að þessu verði aðeins við komið 1 kaupstöðum eða kauptúnum, en það er misskilningur. Barnamessum fjölgar um sveitir landsins, og sunnudaga- skóla er vel fært að ljalda i hverri kirkju að lokinni guðsþjónustu. Mér er t. d. vel kunnugt um prest, sem hafði þann sið að balda sunnudagaskóla hvert sinn

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.