Kirkjuritið - 01.01.1944, Side 64

Kirkjuritið - 01.01.1944, Side 64
58 Sveinn Yíkingur: Jan.-Febr. og hafi lengst af verið afturhaldssöm, og fremur hlelck- ur um fót, en vængur til flugs, eða armur til athafna og framsóknar. Þeir telja því enga eftirsjá að því, þótt starf hennar dragist saman eða jafnvel hverfi með öllu. Sízt skal því neitað, að margt má að hinni íslenzku kirkju og starfi hennar finna, hæði í fortið og nútið, og er svo um flest á jörðu liér, að á því má finna veilur og galla, ef á þá er blínt og eftir þeim er leitað. En — þótt galli sjáist á smíð eða veila i viði, er eigi þar með sagt, að til alls sé ónýtur. Svo er og um kirkjuna, að ekki er rétt að dæma hana eingöngu af göllum hennar og ófull- komleika. Það verður einnig að líta á kosti liennar og verðleika, það gildi og þýðingu, sem hún hefir haft fyr- ir þjóðina, það gagn, sem hún hefir unnið i trúarlegu, mannúðarlegu og menningarlegu tilliti. Hollast miklu er hverjum manni að kunna rétt skil á hverjum hlut, sjá í senn bæði kosti lians og galla, enda verður því að- eins kveðinn upp sanngjarnlegur dómur, að háðar þess- ar hliðar séu skoðaðar jafnvendilega. I þessu stutta erindi vinnst engan veginn tími til þess að rekja þá þýðingu, sem íslenzk kirkja liefir hafl fyrir þjóðina á liðnum öldum, eða lýsa störfum hennar og af- rekum. Þó verð ég að leyfa mér að drepa lauslega á örfá atriði, sem oss má ekki sjást yfir, ef vér eigum að geta skapað oss réttlátt viðhorf til kirkjunnar. En það vona ég að vér viljum öll gjöra. Þegar vér virðum fyrir oss sögu kirkjunnar, sjáum vér fljótt, að hún hefur ekki verið jafn afturhaldssöm, og margir liyggja, heldur hefur hún þvert á móti átt frumkvæðið að mörgum nýjungum i íslenzku þjóðlífi og þeim harla mikilsverðum og' merkilegum. Takið þér nú eftir: Hver átli frumkvæðið að því að koma á fót skipu- lagsbundnu framfæri fátækra á þessu landi? Það gerði kirkjan, það gerði Gissur hiskup ísleifsson með tíundar- lögum þeim, er liann fékk lögtekin á Alþingi 1096, því að

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.