Kirkjuritið - 01.01.1944, Side 67

Kirkjuritið - 01.01.1944, Side 67
Kirkjuritið. ViÖhorfiÖ til kirkjunnar fyr og nú. (51 séra Björn Halldórsson í Sauðlauksdal og séra Tómas Sæmundsson. Ég nefni einn aðalforvígismann bindindismúlanna, séra Magnús Jónsson í Laufási. Ég nefni forgöngumann i slysavörnum sjómanna séra Odd Gíslason. Ég nefni fræðimenn eins og séra Jón i Hítardal og séra Pétur í Grímsey. Ég' nefni ættfræðinginn séra Einar prófasl Jónsson á Hofi. Ég nefni þjóðskáldið séra Matthías Joch- umsson. Ég nefni skóla- og fræðimenn eins og séra Mag'n- ús Helgason og séra Jónas frá Hrafnagili og svona mætti lengi telja. Islenzkri kirkju í kaþólskum sið liefur mjög verið hor- ið það á hrýn, að hún hafi ágjörn verið og ágeng og frek til fjár.Hefur hún fyrir það hlotið þungan áfellisdóm, af mörgum. Ekki skal þessa svnja, né heldur nein tilraun gerð til þess að þvo kirkjuna hreina af þeirri ákæru, enda það ekki hægt. En á hitt er þá rétt að minna, að kirkjan hafði þá með höndum mikið starf og stórar framkvæmdir, hæði í skólamálum og fleiru, sem kost- uðu árlega mikið fé. Og kirkjan þurfti að eiga miklar eignir til þess að geta árlega haft ráð á handbæru fé til starfs síns. Og illa þekkja þeir menn sögu þjóðarinnar á þessum tímum, sem halda, að það hafi verið kirkj- an ein, sem frek var til fjár á þessum tímum. Verald- legu höfðingjarnir voru áreiðanlega sízt betri i þeim efnum. Ég er meira að segja ekki alveg frá því, að ein- hver pínulítill angi af fégirninni, sem miðaldakirkjan er áfelld fyrir, sem stórglæp, kunni enn að leynast í hrjósti liins fágaða og menntaða nútímamanns, og sé jafnvel að skjóta nýjum frjóöngum nú i peningaflóðinu og dýrtíðinni. Það getur stundum verið hollt að horfa sjálfum sér nær, áður aðrir eru áfelldir. Og hvernig var það eftir siðaskiptin? Það skyldi nú vera, að það hafi verið eintómur tárhreinn trúaráhugi, sem knúði konung- inn og ríkisvaldið til þess að lirifsa, ekki aðeins jarðeign- ir klaustranna í þessu landi, heldur einnig marga helg-

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.