Kirkjuritið - 01.01.1944, Page 71

Kirkjuritið - 01.01.1944, Page 71
Kirkjuritið. ViðhorfiÖ til kirkjunnar fyr og' nú. '65 sinu starfsviði. Kirkjan þarf að fá aukið fé til umráða, ltæði til bókaútgáfu, og til þess að geta sent áhugasama menn út um landið til þess að vekja, einkum æskuna, til ljósari meðvitundar um köllun sína. Að því verður að stuðla með ráðum og dáð, að verulegir úrvalsmenn að áhuga og gáfum laðist til þess að stunda guðfræðinám og ganga í þjónustu kirkjunnar, og jafnframt verður að trvggja þeim þá ágætustu kennslukrafta, sem kostur er á. En hér þarf enn meira og víðtækara starf. Þjóðinni sjálfri þarf að skiljast það, að kirkjan i þessu landi er meira en liinn fámenni liópur prestanna. Ivirkjan er einnig fólkið, söfnuðirnir í hverri byggð, kirkjan er samfélag allra þeirra, sem trúa á Guð, gæzku lians og mátt, allra þeirra, sem unna hugsjónum Jesú Krists, allra þeirra, sem vilja stvðja og efla lieilbrigðara samlíf, styðja gró- andi þjóðlíf með þverrandi tár, sem þroskast á á „Guðs“ ríkis braut. Ef kirkjan á að verða þess megnug að rækja köllun sína nú og vinna silt stóra hlutverk, verður fólkið sjálft, söfnuðurnir, að hjálpa til. Enginn má þar hlaupast undan merki eða skjótast undan skyldu til þess að velta henni vfir á aðra, ekki prestarnir, ekki stjórnmálamenn- irnir, ekki kennararnir, og allra sizt söfnuðirnir í liverri tyggð. Akrarnir eru jjegar hvítir lil uppskeru. Verkefnin híða allsstaðar eftir starfandi huga og hönd. Það, sem skortir, er ekki verkefnin, heldur framtakið, trúin, starfs- viljinn. Það er eins og skáldið segir: Fyrst er að vilja veginn finna, vaka og biðja í nafni hans meistaranna meistarans. Þrevtast eigi, vinna, vinna, vísdóms æðstu köllun sinna, leita sífellt sannleikans. Og hann hætir við þessu, sem ég vildi gera að niður- lagsorðum mínum hér í kvöld.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.