Kirkjuritið - 01.01.1944, Side 78

Kirkjuritið - 01.01.1944, Side 78
Jan.-Febr. Hátíðirnar þrjár Hjú ísruelsmönnum. í II. Mósebók 23, 14—17 er ritað þannig: „Þrisvar á ári skalt þú mér hátíð halda. Þú skalt halda hátíð liinna ósýrðu hrauða; sjö daga skalt þú eta ósýrt brauð, eins og ég hefi hoðið þér, á ákveðn- um tíma í abib-mánuði, því að í þeim mánuði fórst þú út af Egiptalandi; enginn skal koma tómhentur fvrir mitt auglit; og hátíð frumskerunnar, frumgróðans af vinnu þinni, af því að þú sáðir í akurinn; og uppskeru- hátíðina við árslokin, er þú alhirðir afla þinn af akr- inum. Þrem sinnum á ári skal allt þitt karlkyn birtast frammi fyrir herra Drottni“. Þessar þrjár hátíðir voru aðalhátíðir ísraelsmanna, og fram eftir öldum einu hátíðir þeirra. Af þeim var „hátíð ósýrðu brauðanna“ páskaliátíðin — aðalhátiðin, og var haldin til minningar um burtförina úr Egiptalandi, var því lofgjörðar og þakklætisliátíð þjóðarinnar fyrir handleiðslu og vernd Drottins, Guðs síns. Þessi hátíð var haldin í ahih-mánuði — eða nísan-mánuði, eins og Iiann var síðar nefndur og stóð yfir í 7 daga, frá 14.— 21. abib-mánaðar, hófst eftir okkar mánaðartali 7.- 15. apríl. Hátíð frumskerunnar — eða viknahátíðin, svonefnd af því, að þessi hátíð var haldin 7 vikum eftir páslca - var eiginlega aðeins eins dags hátíð, en með undirbún- ingi og umstangi fóru þó þrír dagar lil þessarar hátíð- ar. Þessi hátið var haldin í mánuðinum sivan eða siv, í júnímánuði að okkar tali, eða 50 dögum eftir páska, og svarar þannig lil hvítasunnuhátíðar okkar nú. Þriðja — en önnur aðalhátíðin — var uppskeruhátíð- in eða laufskálahálíðin, sem slóð vl'ir í sjö daga og var

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.