Kirkjuritið - 01.04.1949, Blaðsíða 6
84
KIRKJURITIÐ
KOM, DROTTINN JESÚ.
Kom, drottinn Jesú; — degi halla fer.
Sjá, dimman nálgast; herra, með oss ver.
Senn grúfir nótt, — en þú ert Ijós og líf; —
ó, lausnari, vor geym í þinni hlíf.
Kom, drottinn Jesú; — fær oss páskafrið,
er fylli hjörtun von um sátt og grið.
Kom, drottinn Jesú; — leggðu yfir lönd
til líknar þína gegnumstungnu hönd.
Kom, drottinn Jesú; — þerra trega tár; —
vér treystum þér, — ó græð hin djúpu sár.
Heyr jörðin stynur; — sefa sorg og neyð;
úr syndakvölum ráðvillt mannkyn leið.
Kom, drottinn Jesú: — deyja verður hver;
ó, drottinn, kom, er stund vor nálgast fer,
og, drottinn, veit, að dáið getum vér
í dýrri von um líf og starf hjá þér.
Kom, drottinn Jesú; — blessa bæ og sveit
og blessun svefnsins hverri sálu veit.
í þínu nafni börn guðs loka brá
og bíða morguns. — Jesú, vek oss þá!
Vald. V. Snævarr.