Kirkjuritið - 01.04.1949, Blaðsíða 17
95
SÉRA PÁLL JÓNSSON
snemma notið hjá þeim þeirrar fræðslu, er þau gátu honum í
té látið og þó einkum innrætt honum á bamsaldri guðrækni
°g góða siði. Þess gat hann oft við mig, hve móðir sín hefði
verið bænrækin og fylgt föstum reglum með guðræknisiðkanir
í heimahúsum. Virtist mér sem hann vildi gefa í skyn, að í
Þessum efnum hefðu ráð hennar verið fullt eins mikil eða jafn-
vel meiri heldur en föður síns. En hins vegar skildist mér, að
þau hjón hefðu verið mjög samhent í öllu og fullkomin ein-
drægni ríkt á heimili þeirra. Má telja víst, að þau bæði, og
eigi síður hún, hafi veitt honum það veganesti á barnsaldri,
sem entist alla æfi. Auk þess mun skólaveran hafa haft hin
djúptaekustu áhrif á hann, enda kunni hann vel að meta kenn-
era sína og dáðist mjög að þeim, eigi sízt að Bimi Gunnlaugs-
syni, „spekingnum með barnshjartað". Um Björn fórust hon-
hm einu sinni orð á þessa leið: „Hann lyfti anda sínum stund-
um svo hátt, að hann heyrði hvorki né sá það, sem í kringum
hann fór fram; þá var sál hans uppi á hinum fjarlægustu
stjörnum.“
Eftir að séra Páll hafði lokið skólanámi (hann lærði undir
skóla hjá séra Þorleifi Jónssyni í Hvammi í Dölum), varð
hann skrifari hjá Bjarna amtmanni Thorarensen á Möðmvöll-
Um í Hörgárdal.
Hann kemur þangað 1837 og dvelst þar 3^2 ár. Líklegt
má telja, að vera hans hjá Bjarna hafi glætt skáldgáfu hans,
Þótt hún hafi verið vöknuð áður, því að mjög dáði hann
skáldskap hans, og mun hafa farið vel á með þeim, meðan
Þeir voru saman. Páll kvæntist 22. sept. 1839 Kristínu Þor-
steinsdóttur stúdents í Laxámesi í Kjós Guðmundssonar.
Næst eftir skrifstofustörfin á Möðruvöllum og kennslustörf
í Víðidalstungu einn vetur, mun séra Páll hafa tekið prests-
vígslu sem aðstoðarprestur hjá séra Gamalíel Þorleifssyni á
Myrká í Hörgárdal árið 1841. Virðist hafa verið kærleikur
mikill milli þeirra prestanna. Er ljós vottur þessa, að séra
Eáll lætur einn son sinn bera nafn séra Gamalíels. Hvort sveinn
Þessi fæddist fyrir eða eftir andlát séra Gamalíels, er mér
ókunnugt. En að séra Gamalíel látnum hygg ég, að séra Páll
hafi fengið veitingu fyrir kallinu. Að hann hafi verið allmörg
ár á Myrká, virðist mega ráða af vísu einni um syni hans, sex
að tölu, sem hún telur alla eiga heima þar, en vísan er þannig: