Kirkjuritið - 01.04.1949, Blaðsíða 24
102
KIRKJURITIÐ
leggja honum lið, að því er séð verður. Þó hefir hún eflzt
á síðustu árum og bætt skipulag sitt.
Tvö mál hafa undanfarið vakið hvað
Frá dönsku mesta athygli í dönsku kirkjulífi. Annað
kirkjunni. er afsetning prests nokkurs, O. Hjorts að
nafni. Hann er ,,rétttrúnaðarmaður“ mik-
ill og lagði í prédikunum sínum megináherzlu á þræl-
bundinn vilja mannanna, gjörspillingu þeirra og algeran
vanmátt til lífernisbetrunar. 1 sjálfu sér hefði söfnuður
hans getað sætt sig við þetta, ef presturinn hefði ekki
sí og æ flutt sömu prédikunina, hvort heldur var við
guðsþjónustur, brúðkaup eða jarðarfarir. Þótti sóknarbörn-
unum hann svo þrautleiðinlegur, að þau gáfust loks alveg
upp á því að sækja kirkju til hans, en leituðu eftir föng-
um til annara presta. Fór þá safnaðarráðið þess á leit
við kirkjustjórnina, að hún losaði söfnuðinn við prestinn,
og lauk svo, að hann var settur af án eftirlauna. En
ýmsir kirkjunnar menn töldu prestinn órétti beittan og
trúfrelsinu í landinu misboðið, enda væri það ekki af-
setningarsök, þótt söfnuði fyndist presturinn leiðinlegur.
Hefir nú Hjort prestur fengið full eftirlaun, og við það
situr. Hitt málið hefir komið enn meira róti á hugi
manna, aðallega fylgjenda Innra trúboðsstefnunnar. Það
er vígsla og starf kvenprestanna. Hefir Innra trúboðið nú
lýst því yfir, að það telji kvenprestana sértrúarmenn, og
varar fólk við því að sækja kirkju til þeirra eða þiggja
af þeim nokkra prestþjónustu. Og trúboðum er bannað
allt samstarf við þá.
Þá er rétt að geta þess, að blað prestastéttarinnar
dönsku hefir gjört nokkra bragarbót fyrir að birta óhróð-
ur Sverre Magelsens um andlát kirkju Islands. Það birtir
nú grein eftir dr. Regin Prenter guðfræðiprófessor í Ár-
ósum, sem finnur mjög að þessum fréttaburði blaðsins.
Hann ritar á þessa leið: „Danir, sem þekkja eitthvað til
kirkju Islands, furða sig á því, með hverjum hætti Presta-
félagsblaðið fræðir lesendur sína um hag kirkjunnar á