Kirkjuritið - 01.04.1949, Blaðsíða 26
104
KIRKJURITIÐ
hervarna einstakra þjóða komi alþjóðlegt réttaröryggi og
samábyrg samtök og vörn gegn hernaðarárás.
Berggrav biskup og fleiri leiðtogar norsku kirkjunnar
hafa sent forsætisráðherra Ungverjalands mjög harðort
bréf út af ofsóknunum gegn lútersku kirkjunni þar í landi.
1 byrjun bréfsins segir m. a.:
„Þér hafið nú, herra forsætisráðherra, látið fangelsa
lúterskan biskup, L. Ordass, sem rís með kristnum hætti
gegn því, er kirkjan hlýtur að brennimerkja sem mis-
beitingu rikisvalds í lýðfrjálsu landi. Þér viljið neyða
hann til að segja af sér. Og er hann neitar því, ákærið þér
hann fyrir gjaldeyrisbrask í stórum stíl og hneppið hann
í dýflissu. Þér viljið með símskeyti um Genéve fá oss til
að trúa röksemdum yðar. En það verður þá aftur á móti
skylda vor að svara því, að vér hljótum að meta athæfi
yðar eftir ljósum staðreyndum, sem fyrir liggja, meta
það sem ofbeldisverk við sannleikann og allar lýðræðis-
legar og kristilegar stjórnarfars-meginreglur."
Manfred Björkquist, biskup í Stokk-
Kristilegt hólmi, og ýmsir aðrir leiðtogar sænsku
friðarstarf kirkjunnar hafa nýlega hafið friðarstarf
með Svíum. og sent áskoranir til Attlees, Trumans
og Stalins. Þeir hafa heitið á kristna menn
í öllum löndum að biðja Guð um frið á jörðu. Og í hverri
viku koma saman í Stokkhólmi kristnir menn af öllum
stéttum til sambænar um frið.
Foringinn, Manfred Björkquist, lýsir á þessa leið því,
er fyrir samtökunum vakir:
„Vér viljum vinna að því, að kristnir menn vaki og
biðji og taki þannig þeim miklu atburðum, er nú fara í
hönd.
Vér verðum að vakna af þeirri deyfð og doða, sem
veldur því, að vér finnum lítt til neyðar veraldarinnar.
Oss hættir svo til að sleppa allri von um viðreisn, því að
hvað munar um oss? Það er eins og fluga ætlaði sér að
stöðva vörubíl. Er ekki þetta vonleysi ótrúmennska eða