Kirkjuritið - 01.04.1949, Blaðsíða 16
94
KIRKJURITIÐ
þín eilífa og óþrjótanlega náð samverki vilja vorum og efli
viðleitni vora til að reynast þér trúir allt til dauðans,
að reynast þér trúir þá fáu daga, sem vér eigum
eftir ólifaða! Ó, vér finnum og vitum, að vér erum ómak-
legir þinnar eilífu náðar, en flýjum þó í þitt blessaða
náðarskjól, því að ekkert er annað að flýja. Já, vér flýjum
til þín og biðjum þig að vera oss syndugum líknsamur í Jesú
nafni, að leyfa oss ómaklegum að láta fyrirberast undir
náðarvængjum þínum, því að vér höfum ekkert annað at-
hvarf. Vér biðjum þig að senda oss þinn heilaga anda, er
huggi oss og hughreysti í allri baráttu jarðneska lífsins, hvort
heldur neyðin mæðir eða syndin særir, hughreysti oss með
náðar-fyrirheitum þínum og veiti oss náð og mátt til að
helga þér allar hugsanir vorar, orð og athafnir, náð og mátt
til að treysta þér af öllu hjarta og elska þig af allri sálu,
náð og mátt til að biðja þig óaflátanlega og að lifa og deyja
í Jesú nafni. Æ, vér vitum, að þú ert eilíf elska og gæzka.
vér vitum, að miskunnsemi þín varir eilíflega. Vér treystum
þér því af öllu hjarta, að þú munir bænheyra oss, blessa oss
og frelsa. Ó, þú hin eilífa uppspretta allrar elsku og gæzku!
Bænheyrðu oss í Jesú nafni. Amen!
NOKKUR ORÐ
UM SÉRA PÁL JÓNSSON SÍÐAST PREST í VIÐVÍK.
Hann er fæddur 23. ág. 1813.1 Faðir hans var Jón Jónsson
bóndi í Hvítadal í Dalasýslu, og er sá bær fæðingarstaður séra
Páls. Ættfeður Páls, hver fram af öðrum, hétu Jóns nafni, en
hinn sjötti og efsti þeirra var Geirmundsson; var Geirmundur
þessi Ólafsson, prests á Kvennabrekku í Dalasýslu. Munu
langfeðgar þessir hafa verið ósviknir Dalamenn. Móðir séra
Páls var Solveig dóttir Gísla hreppstjóra í Hvítadal, Pálssonar
og Guðlaugar Loftsdóttur í Hundadal, Árnasonar prests í
Saurbæ í Dölum.
Séra Páll mun hafa alizt upp hjá foreldrum sínum og átt hjá
þeim heimili allt þar til er hann hafði lokið skólanámi, enda
1) Svo í Vitu hans sjálfs.