Kirkjuritið - 01.04.1949, Blaðsíða 59
FRV. TIL LAGA UM KIRKJUÞING
137
Svör presta voru á þá lund, að 41 samþykktu frumvarpið óbreytt,
3 óskuðu á því lítilsháttar breytinga, en 9 tjáðu sig andvíga frum-
varpinu. Nefndin afgreiddi síðan frumvarpið til kirkjuráðs, er sam-
Þykkti það á fundi sínum 14. febr. s.l., með samhljóða atkv., óbreytt
eins og nefndin hafði frá þvi gengið. Liggur það fyrir í því
formi.
Um gagnsemi þessa frumvarps fyrir kirkjuna ætti ekki að þurfa
að fara mörgum orðum. Hun liggur í augum uppi. Kirkjuþing er
kirkjunnar mönnum ekki síður nauðsynlegt en t. d. bændum og
sjávarútvegsmönnum fyrir sitt leyti þeirra þing. Mætti fastlega
gjöra ráð fyrir því, að þegar fengin væri reynsla af starfi kirkju-
t’ihgs, myndu menn engan veginn vilja án þess vera, enda er þess
að vænta, að með líðandi árum myndi vaxa festa og þróttur í
starfi þess.
Um einstakar greinar frumvarpsins skal það tekið fram, er
hér segir:
Um 1. grein: Októbermánuður mun einna heppilegastur tími
til þinghaldsins. Mestu sumarannirnar eru þá afstaðnar og bíl-
Vegir venjulega enn færir. Einnig má gjöra ráð fyrir setu Al-
Þingis um sama leyti, og getur það verið mikill kostur. Tíminn
til þinghaldsins er ekki ákveðinn lengri með tilliti til þess, að
kostnaður verði sem minnstur, enda ætti hann að nægja a. m. k.
í fyrstu, ef mál væru vel og rækilega undirbúin. Ef brýn þörf
gerðist, gæti kirkjumálaráðherra einnig framlengt þingtímann.
Um 2. grein: Tala kjördæma og kirkjuþingsmanna er einnig
svo lág í sparnaðarskyni. Mun vel mega við hlíta í byrjun.
Um takmörk kjördæma getur alltaf orðið álitamál, en rétt þykir
að miða við prófastsdæmi. I Reykjavikurprófastsdæmi eru að vísu
langfæstir prestar og sóknarnefndarmenn og safnaðarfulltrúar, en
hvorttveggja er á að líta, að þar á heima þriðjungur landsmanna
°g allar líkur til, að prestaköllum muni fjölga í Reykjavík á næstu
árum.
Til þess að gjöra nánar grein fyrir skiftingu í kjördæmi, er hér
skýrt frá tölu þjóðkirkjupresta að lögum, sókna, sóknarnefndar-
hianna og safnaðarfulltrúa.
Tala presta Tala sókna Tala sóknarn.
og sfltr.
1. kjördæmi: 6 4 24
2. kjördæmi: 18, 51 208
3. kjördæmi: 20 46 189
4. kjördæmi: 19 47 188
5. kjördæmi: 17 46 189
6. kjördæmi: 17 36 148
7. kjördæmi: 18 50 209
Samtals: 115 280 1155
Meðaltal: 16,4 40,0 165,0