Kirkjuritið - 01.04.1949, Blaðsíða 23
UTAN LANDS OG INNAN
101
Eftir að foringjanum hefir þannig verið burtu kippt,
hefir lúterska kirkjan gengið til samninga við ríkis-
stjórnina og lotið mjög í lægra haldi. Meðal annars af-
hendir hún ríkinu alla skóla sína og afsalar sér öllum
styrk frá ríkinu að liðnum næstu tveimur áratugunum.
Erelsi hennar og sjálfstæði er í voða.
Kaþólska kirkjan í Ungverjalandi veitir
Mindszenty ríkisvaldinu miklu harðari mótspyrnu, enda
kardínáii. er hún langtum fjölmennari og öflugri.
Hefir stjórnin, eins og kunnugt er, ofsótt
æðsta mann kirkjunnar í landinu, Mindszenty kardínála,
°g helztu fylgismenn hans. Virðast hafa verið bomar á
hann tyllisakir, í því skyni að brjóta mótspyrnu kirkj-
banar á bak aftur og gjöra hana háða ríkinu. Sterkur
grunur leikur á, að ekki hafi allt farið með felldu í
yarðhaldsvist þessara manna né í réttarhöldunum yfir
þeim. Þeir hafa nú verið dæmdir, til þungrar refsingar,
^indszenty t. d. í æfilangt fangelsi. Þetta er nú orðið
^ál kaþólsku kirkjunnar i heild og hún risin einhuga
andmæla. Má ætla, að átökin harðni á komandi tím-
um.
í Búlgaríu er svipuð barátta hafin gegn ýmsum prestum
°g þeir dæmdir í fangelsi, sem kunnugt er.
Einhver frægasti guðfræðiprófessorinn
®rnst í Þýzkalandi, Ernst Lohmeyer að nafni,
Lohmeyer. hefir einnig verið hnepptur í dýflissu.
Em Nýja testamentis fræði kennslugrein
hans og afrek hans mikil á því sviði. Vísindarit hans, sem
hingað hafa borizt, hafa vakið athygli og aðdáun, þau
hera jafnt vitni um frumlegar og skarpar hugsanir og
sannleiksþor. Lohmeyer var eins og Niemöller prestur
andstæður Nazistum. Launuðu Rússar honum með því
að gera hann að rektor háskólans í Greifswald. En auð-
sjáanlega hefir hann ekki reynzt þeim nógu hlýðinn.
Því að nú situr hann í fangelsi af þeirra völdum. Og
evangelisk-lúterska kirkjan í Þýzkalandi dirfist ekki að