Kirkjuritið - 01.04.1949, Blaðsíða 76
Bœkur,
Contemporary Thinking about Jesus.
Compiled by Thomas S. Kepler.
New York 1944.
Þetta er mikið rit, 492 bls. í stóru broti, og hið merkasta.
Það er safn af ritgjörðum, 55 talsins, eftir ágætustu guð-
fræðinga síðustu tíma. Þannig hyggst safnandi að bregða
upp ljósi yfir hugsanir samtíðar sinnar um Jesú. Hann segir,
að Jesús sé miklu meiri en svo, að nokkur einstakingur fái
skilið hann. En nokkru nær verði um þann skilning, er hugsanir
margra vitrustu og beztu manna komi saman. Spurningarnar,
sem þeir leitast við að brjóta til mergjar, eru einkum þessar:
Hvert er gildi Jesú fyrir oss nú á dögum? Eru guðspjöllin
áreiðanlegar söguheimildir? Að hverju miðaði kenning Jesú?
Iivað hugsaði hann um sjálfan sig? Er unnt að greina sundur
fagnaðarboðskap hans og fagnaðarboðskapinn um hann?
Efni bókarinnar greinist í fimm aðalþætti, sem hér segir:
I. Eðli Samstofna guðspjallanna.
H. Mynd Jesú í Fjórða guðspjallinu.
m. Jesús frá sögulegu sjónarmiði.
IV. Heimsslitafræði og siðfræði.
V. Sérskoðanir nútíðarmanna á gildi Jesú.
Skoðanir höfunda eru að sjálfsögðu mjög margbreytilegar,
og ekki við því að búast, að lesandi verði alltaf sammála. En
bókin er skrifuð af einlægni, djörfung og sannleiksást, og
gróði að því að lesa hana. Verður hver sá, sem les hana,
að sjálfsögðu stórum fróðari um guðfræði okkar tíma.
Verð bókarinnar í góðu bandi er tæpar 30 kr. íslenzkar.
Dr. med. Ámi Ámason:
Þjóðleiðin til hamingju og heilla.
Bókaútgáfan Norðri 1948.
Bók þessi er skýr og greinagóð lýsing á eðli og gildi kristin-
dómsins. Hún er mjög skipulega samin og þrungin efni. Til