Kirkjuritið - 01.04.1949, Blaðsíða 75
Hvað er kristindómur?
Ég stóð ráðþrota. Ég vissi ekki, hvað lífið var, né sjálfur
né nokkur skapaður hlutur. Líf mitt og vit lá við, að
ég fengi svar. En hver átti að svara mér? Sjálfur gat ég
ekki ráðið fram úr neinu, og vitringar, sem ég leitaði, voru
ósammála og í mótsögn við sjálfa sig, og mér virtust þeir
°ft vesælli og bjánalegri en bjálfamir. En alltaf, þegar ég
kom fram fyrir Krist, fékk ég annaðhvort svar — sem ekki
var hinna skriftlærðu, eða spurningin missti allt gildi sitt
°g hvarf mér af tungu. Hvert var þá svar hans? í orðum
eða aðeins í augnaráði. Það var kristindómur. Ó, hvað er
kristindómur? Einungis það, að hafa öðlazt traust á Guði
— traust á Guði fyrir Krist. Hann er engan veginn það, að
mselt sé fyrir vegum Guðs og þeim lýst eða skrá afhent um
eiginleika hans og einkenni, heldur er kristindómurinn leyfi
til að treysta því örugglega hvað sem fyrir kemur, jafnvel
með ótta og angist, að Guð sé veruleiki og breytist aldrei,
heldur hafi alla þræði í hendi sér. Já, það er þetta traust,
sem er nógu voldugt til þess að þurfa hvorki að vita né
skilja. Það getur sagt í sömu andrá: „Guð minn, Guð minn, hví
hefir þú yfirgefið mig,“ og þegar á eftir: „Faðir, í þínar
hendur fel ég anda minn.“
Kaj Munk.