Kirkjuritið - 01.04.1949, Blaðsíða 80
158
KIRKJURITIÐ
Kirkjudagur Borgarfjarðarprófastsdæmis 1948.
Sunnudaginn 13. júní s.l. efndu prestar og leikmenn í Borg-
arfjarðarprófastsdæmi til almenns kirkjudags á Akranesi.
Dagurinn hófst með því, að haldin var hátíðleg guðsþjónusta
í kirkjunni kl. 2. Biskupinn, herra Sigurgeir Sigurðsson dr.
theol., prédikaði, en sóknarpresturinn, séra Jón M. Guðjónsson,
þjónaði fyrir altari.
Að guðsþjónustu lokinni hafði bæjarstjórn Akraness kaffi-
boð inni fyrir aðkomumenn og nokkra bæjarbúa. Var vel veitt
og ræður fluttar yfir borðum.
Þá var haldið til Bíóhallarinnar, og fóru dagskráratriði þar
fram. Höfðu umráðamenn hennar sýnt undirbúningsnefnd dags-
ins þá miklu velvild, að lána húsið endurgaldslaust.
í Bíóhöllinni fluttu ræður: Dr. theol. séra Friðrik Friðriks-
son, Pétur Ottesen alþingismaður og séra Sigurjón Guðjónsson
prófastur. En biskupinn flutti ávarpsorð að lokum.
Kvikmynd var sýnd. — Kirkjukór Akraness, er æft hafði sig
vel fyrir þenna dag og lagt á sig erfiði til að gera hann sem
hátíðlegastan, söng milli ræðnanna.
Bíóhöllin er stórt hús, en var þó næstum fullskipuð áheyr-
endum.
Kirkjudagurinn heppnaðist vel, og hafa Borgfirðingar hug á
að efna til annars kirkjudags á vori komanda.
Gestrisni og hvers konar fyrirgreiðsla Akrnesinga var með
ágætum.
Undirbúning dagsins annaðist 5 manna nefnd, er kosin var
á héraðsfundi 1947, en hana skipuðu: Séra Sigurjón Guðjóns-
son prófastur, séra Jón M. Guðjónsson, Jóhann Guðnason sókn-
amefndarmaður á Akranesi, séra Guðmundur Sveinsson og Guð-
mundur Jónsson skólastjóri, Hvanneyri. S. G.
Aðalfundur Hallgrímsdeildar 1948.
Aðalfundur Hallgrímsdeildar var haldinn í Ólafsvík og að
Staðastað dagana 4. og 5. sept. 1948. Mættir voru sjö deildar-
menn og auk þeirra tveir gestir, þeir séra Sigurbjörn Á. Gísla-
son og Alfreð Gíslason læknir, Reykjavík.
Formaður deildarinnar, séra Magnús Guðmundsson, setti
fundinn með ritningarlestri og bæn, og bauð síðan félaga og
gesti velkomna og las upp skeyti, er fundinum hafði borizt frá
heiðursformanni deildarinnar, séra Þorsteini Briem.