Kirkjuritið - 01.04.1949, Blaðsíða 8
86
KIRKJURITIÐ
miskunnar, líttu því til vor í náð og miskunn. Æ, þú ert
svo ríkur af öllu góðu, veittu oss því þín himnesku náðargæði,
veittu oss ástgjafir þíns heilaga anda: blessun og hjálpræði,
náð og frið, líkn og huggun og styrkleika til alls góðs. Frá
þér einum kemur öll góð og fullkomin gjöf — öll blessunar
og náðar gæði; auðgaðu oss því í dag og ætíð með þínum
himnesku náðargjöfum og gerðu oss af þinni eilífu náð ríka
í þér — ríka af öllu góðu — ríka af elsku, trú og von — ríka
af þolinmæði — ríka af lofgjörð og þakklæti — ríka af trúnað-
artrausti og undirgefni undir þinn blessaða náðarvilja. Láttu
þinn heilaga anda koma yfir oss og helga oss í þínum himneska
sannleika. Láttu hann helga þér hjörtu vor, helga og endur-
nýja vorn innra mann, svo að hver og einn meðal vor verði
nýr maður í Jesú Kristi, er lifi þér í réttlæti og heilagleika,
svo að vér allir verðum þín góð og blessuð böm — útvalin
og elskuleg börn góða föðurins á himnum, er veitir oss allt
gott af einskærri náð. Taktu oss nú alla í þinn blessaða föður-
faðm; þar er vort eina hæli og eina athvarf. Við þitt himneska
og eilífa ástarhjarta viljum vér hvíla í blíðu og stríðu, þar
viljum vér lifa og deyja, því að þaðan streymir til vor náðin
og blessunin, ljósið og lífið, friðurinn og frelsið. Æ, góði
faðir! gefðu oss nú allt gott, sem vér biðjum þig um, sam-
kvæmt hinum djúpa ríkdómi þínum í Jesú Kristi, og bæn-
heyrðu oss í hans blessaða nafni. Amen!
Faðir vor........
Huggarinn sá heilagi andi, sem ég mun senda yður í mínu
nafni, hann mun kenna yður alla hluti og minna yður á allt,
er ég hefi kennt yður, sagði Jesús við lærisveina sína, eins
og hið heilaga guðspjall þessa hátíðardags skýrir frá. Þetta
rættist á Hvítasunnu-hátíðinni á fimmtugasta degi eftir upp-
risuna og tíunda degi eftir himnaförina, því að þá sendi hann
þeim heilagan anda og stofnaði hina kristilegu kirkju. Þetta
lét hann ske á Hvítasunnudag, því að aldrei voru eins margir
saman komnir í Jerúsalem eins og þá. Gamlar fræðibækur
segja, að einu sinni hafi þar verið saman komnar 3,000,000
manna, sem flestir halda að hafi verið þegar heilagur andi
kom yfir postula Krists. Með þessum hætti gat dásemd sú,