Prestafélagsritið - 01.01.1921, Blaðsíða 138
Prestafélagsritið.
Hans Egede.
133
og prýðilega gáfaður, enda hvarf hann frá námi sínu með
ágætum vitnisburði kennara sinna.
Hann tók prestsvígslu aðeins 21 árs og gerðist prestur
i Vaagen, víðáttumiklu en illa launuðu prestakalli norður
í Lófóten. Hér fékk hann brátt bezta orð á sig fyrir
kennimannlegan áhuga og góða prédikarahæfileika, enda
sótti safnaðarfólkið vel kirkjur hans, svo að ekki höfðu
þær verið betur sóttar þar öðru sinni.
Nú vildi svo til, að einmitt um sama leyti sem tru-
boðsáhuginn vaknar í sálu hans fyrir áhrif frá pietistun-
um, kynnisl hann gömlum skrifum um landnám norrænna
manna á Grænlandi og fékk um leið vitneskju um hversu
samband þeirra við umheiminn hefði smámsaman slitnað,
svo að nú hefðu engar fregnir af þeim borist í marga
mannsaldra. Að þeir hlytu að vera soknir niður í svarta-
myrkur fáfræði eftir svo langan tíma, um það þóttist
hann vís, — en þá var það líka kristileg skylda hans
sem prests einmitt að fara til þeirra og hjálpa þeim með
Ijósi guðs heilaga orðs.
Eftir að hafa íhugað málið svo vandlega sem hann
gat, kom hann fram með »tillögur um afturhvarf og upp-
lýsingu Grænlendinga«, enda hafði nú sú skoðun náð
meiri og meiri festu í sálu hans, að hann ætti sjálfur að
vera við þvi búinn, að taka að sér slíkt starf meðal þeirra.
í fyrstu mætti hann megnustu mótspyrnu ættmanna
sinna, er fanst þessi hugsun hans ganga vitfirring næst.
Sérstaklega mátti kona hans, Gertrude Rasch, ekkja for-
manns hans í embættinu, er hann að þeirra tíma sið
hafði verið látinn ganga að eiga, ekki heyra þessar fyrir-
ætlanir hans nefndar. En Egede tók því öllu með still-
ingu og tókst þá líka brátt að fá konu sína á sitt mál,
en það lagði hann mest kapp á, svo mikið traust sem
hann bar til hennar, enda átti hann engan stuðningsmann
einbeittari og einlægari frá því augnabliki sem hún hafði
sannfærst um, að hér væri ekki um neina draumóra að
ræða, heldur um beina köllun frá guði. Og meira að segja.