Sjómannadagsblaðið - 01.06.1989, Blaðsíða 16
14
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Einnig tóku þátt í kappróðrinum
áhafnir á færeyskum og dönskum
skútum, sem lágu í Reykjavíkur-
höfn.
Björgunarsveitin Ingólfur í
Reykjavík sýndi notkun neyðar-
björgunartækja á sjó.
Kaffisala fór fram á Hrafnistu-
heimilinum í Reykjavík og Hafnar-
firði og komu þangað fjölmargir og
heilsuðu upp á vistfólk heimilanna.
Um kvöldið var Sjómannahóf á
Hótel íslandi og var það vel sótt, en
þangað komu 950 manns til kvöld-
verðar og fór sú skemmtun mjög vel
fram í alla staði.
Sjómannadagurinn þakkar þeim
mörgu sem stuðluðu að því að þessi
50 ára afmælishátíð fór jafn vel fram
og raun bar vitni.
Þar má nefna borgaryfirvöld,
hafnarstjórn Reykjavíkurhafnar og
starfsmenn hennar, og þá fjölmörgu
fulltrúa Slysavarnarfélags íslands,
sem veittu ómetanlega aðstoð, út-
gerðarstjóra Hvals hf. fyrir lánið á
Hvalbátunum, starfsfólki Hrafnistu-
heimilana, sem ávallt er reiðubúið til
stórátaka þegar mest á reynir og síð-
ast en ekki síst skipulagsnefnd Sjó-
mannadagsins, sem annaðist undir-
búning dagsins með miklum sóma.
Á vegum afmælisnefndar Sjó-
mannadagsins var gefin út, á haust-
mánuðum, hljómplata „Á frívakt-
inni“, sem er safnplata með gömlum
Sjómannalögum, sem Gunnar Þórð-
arson, tónskáld, tók saman og út-
setti.
Á vegum Sjómannadagsins var
gefin út bókin „Siglingasaga Sjó-
mannadagsins" og sá Ásgeir Jakobs-
son, rithöfundur um ritun bókarinn-
ar. Bók þessi er til sölu á skrifstofu
Sjómannadagsins í Reykjavík.
Afmælisnefnd Sjómannadagsins
eru hér færðar hugheilar þakkir fyrir
framlag hennar til Sjómannadagsins,
þá mörgu fundi sem hún sat og undir-
búningsvinnu alla.
Öllum þeim sem ekki eru nefndir,
en stuðluðu að framgangi dagsins á
einn eða annan hátt er einnig þakkað
fyrir framlag þeirra.
Garðar Þorsteinsson
Pétur Sigurðsson heilsar forseta við Dómkirkjuna að morgni Sjómannadagsins.
Forsetinn heilsar vígslubiskupi og dómkirkjupresti við guðsþjónustu á Sjómannadag-
inn.
Dr. Lúðvík Kristjánsson, sagn-
fræðingur, fyrir hið stórmerka rit Is-
lenskir sjávarhættir, Sigfús Halldórs-
son, tónskáld, fyrir ómetanlegan vin-
skap og velvild hans til
Sjómannadagsins um marga áratugi
og Pétur Sigurðsson, formann Sjó-
mannadagsráðs, félagi í Sjómannafé-
lagi Reykjavíkur, en hann hefur
verið formaður Sjómannadagssam-
takanna í tuttugu og sex ár samfellt.
Það má segja að ekki sé á nokkurn
mann hallað þótt sagt sé að fáir, ef
nokkur, hafi unnið meir að málefn-
um aldraðra á breiðum grundvelli en
hann.
Síðan fór fram úrslitakeppni í
kappróðri á Reykjavíkurhöfn, þar
sem keppt var til úrslita í karla- og
kvennasveitum.