Eimreiðin - 01.01.1938, Blaðsíða 68
46
OPNUN GRÆNLANDS
EIMnEIÐIN'
einkum þar sem útlendingar eru ekki undir sama eftirlit settir.
Það eru með öðrum orðum notuð öll hugsanleg ráð til þesS
að varðveita einokunina, en þar sem erlend stórveldi hafa
krafist frjálsra afnota af grænlenzkri höfn, getur stjórnin ekki
beinlínis komið í veg fyrir að Færeyingar noti þessa höfn einn-
ig. Hinsvegar heldur hún látlaust uppi hinum óviðfeldnu þving-
unarráðstöfunum gegn Færeyingum. Og það er ekki nóg að
hún setji þenna óboðlega stimpil á heiðarlega og ötula danska
sjómenn, heldur sýnir hún einnig og embættismenn hennar,
að fiskimenn vorir eru illa séðir gestir við Grænland. Svokall-
aðir „vísindalegir" leiðangrar erlendra manna og amerísk lysti-
skip njóta gestrisni hjá grænlenzku stjórninni, og þeim er tek-
ið með kostum og kynjum, en dönsk skip undir dönskum fá1111
ofsótt á svívirðilegasta hátt. Þannig er það orðin hreinasta-
plága, hvernig unglingar í þjónustu stjórnarinnar hafa það að
dægradvöl, án þess að hafa nokkurt lögregluvald, að eltast við
færeyska fiskimenn meðfram ströndunum, taka þá formála-
laust og draga þá fyrir yfirvöldin í landi, sem svo dæma þ11 1
þungar fésektir. Auðvitað hafa þessir einokunar-gemsar ekk-
ert vit á að dæma um það, hvort fiskimennirnir eru innan við
þriggja mílna takmörkin eða ekki, og því síður hafa þe,r
nokkra heimild til að taka sér lögregluvald. En það hörinuleS'
asta við alt þetta einokunarbrjálæði er það, að sjálfir Græn-
lendingarnir geta hagað sér alveg eins hvar og hvenær sem þelin
gott þykir. Það liggur í augum uppi að svona réttarfar hlýtm'
að enda í hreinu og beinu stjórnleysi. Og slíkar aðfarir hafa
það óumflýjanlega í för með sér, eins og áður er sagt, að faU'-
eyskir fiskimenn neyðist til að grípa til vopna, þegar þeim el’
ógnað með vopnum. Það er óumflýjanleg sjálfsvörn gegn ein'
okuninni og þjónum hennar. Það þarf A'arla um það að ræða,
hvað af þessu getur hlotist. Spurningin, sem hér kemur til at-
hugunar, er skýr og greinileg: Hver ber ábyrgðina á því, íl®
svona er komið? Og hverra erindi er verið að reka þar sem
Grænlendingum er kent að sýna fjandskap öllum dönskum
framkvæmdum, sem eru óháðar einokunarstjórninni? Og 11 ®
lokum: Hver er meiningin með því að reyna að koma fram
óeðlilegri sjálfsstjórnar-pólitík á Grænlandi? Er það síðasta
vígi einokunarinnar, sem verja á með slíkum ráðmn?