Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1939, Side 72

Eimreiðin - 01.10.1939, Side 72
416 DR. VILHJÁLMUR STEFÁNSSON EIMREIÐIN Heimsskautslöndin unaðslegu. Þriðji leiðangurinn, 1913—1918, var lang-umfangsmestur, lcostaður af Kanadastjórn að öllu leyti og ekkert til sparað. Þá dvaldi höf. lengst af ekki „meðal Eskimóa“, heldur langt fyrir norðan bústaði þeirra. Þar kemur glæsilegast fram skarp- leiki Vilhjálms Stefánssonar, er hann gengur í berhögg við álit allra sérfróðra manna, i'yrri pólfara, vísindamanna, hval- veiðara í íshafinu og Eskimóanna við strendur þess, sem allir töldu ördeyðu í íshafinu þegar nokkuð kæmi frá landi. Vil- hjálmur ályktaði af sínu „skynsamlega viti“, að æti mundi vera nóg, og þar sem ætið er, þar væru einnig lífverur. Um íshafið mætti því ferðast án verulegs farangurs og afla sér matar með veiði. Þessi djarfa ályktun reyndist rétt. Vilhjálmur ferðaðist vorið 1914 alls 1100 km. leið um hafís, lengst af við þriðja mann, og kom eftir 96 daga heilu og höldnu á land aftur. Svipuðum ferðalögum var svo haldið áfram næstu árin. Eins og áður er getið var ekkert til sparað við útbúnað þessa leiðangurs. Starfsmenn voru margir, og átti Vilhjálmur í nokkr- um erfiðleikum við þá. Þannig brást honum, að skip væri komið með nýjan útbúnað handa þeim félögum á þann stað, þar sem þeir komu fyrst að landi eftir íssferðina, enda voru þeir alveg taldir af. Þeir áttu þá aðeins rúmlega 200 skot í tvo rifla, er þeir höfðu meðferðis. Það sýnir bezt hið óbilandi þrek og áræði Vilhjálms, að þó að þeir yrðu að hafa þarna vetrar- setu aðstoðarlausir, var hann að bollaleggja nýtt ferðalag úti á hafísnum, með þessi 200 skot, er birta tælíi aftur um vetur- inn, og hugðist að leita ekki til mannabygða fyr en sumarið eftir. Honum hefði eflaust tekist þetta, og hefði það sýnt enn glæsilegri árangur af hinni djörfu ályktun hans. En hinn ótrauði Wilkins kom skipi norður á Bankseyju, og náðu þeir Vilhjálmur og menn hans sambandi við það, svo að þetta breyttist. Saga þessa leiðangurs er í þrem bindum, þ. e. meira en hehn- ingur ritsafnsins, enda er frá mörgu að segja, þó að hér sé ekki rúm til að fara nánar út í það. Það er mikill fengur fyrir þjóðina, að Ferðabækur Vilhjálnis eru nú komnar á íslenzku. Ekki getur heilbrigðari skemtilestur,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.