Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1959, Page 28

Eimreiðin - 01.07.1959, Page 28
170 EIMREIÐIN ynnileg, hljóð og barnslega látlaus, en beinlínis gædd fersku lífi. Þessi ferska nálægð við lífið er annar meginþátturinn í list hans. Hinn er siðgæðið, sem hann missir aldrei sjónar af, Jró að það viðhorf liggi ósjaldan vandlega dulið, þegar þess er jjörf, svo að listin fái notið sín. Endra nær gagnsýrir postul- leg kenning spámannsins heil verk, svo að án hennar væru þau aðeins svipur lijá sjón. Þannig er Ströndin, ein átakan- legasta bók, sem komið hefur út á íslenzku. Aðalsöguhetjan er gáfaður og fórnfús prestur, séra Sturla. Hann töfrar sókn- arbörnin með málsnilld sinni, tekur ynnilegan þátt í sorg þeirra og gleði og bjargar skipshöfn úr lífsháska með hetju- dáð. Vegna oftrausts á guði, sem um leið er skortur á ábyrgð- artilfinningu, stofnar hann í liættu lífi konu sinnar, sem þeg- ar hefur alið litla stúlku, en læknirinn trúði honum fyrir, að nún þyldi eigi annan barnsburð. Konan fæðir aðra stúlku •ueð miklum þjáningum og deyr að því búnu. Síðan verður séra Sturla ekki samur maður. Trúartraust hans hefur beðið alvarlegan hnekki og um leið metnaður og lífslöngun. Hann lætur þingsæti sitt í hendur andstæðings síns. Thordarsens verzlunarstjóra, sem hafði hrakið vin séra Sturlu, Finn á Vaði, frá jörð sinni, af því að hann vildi ekki styðja Thord- arsen til þingmennsku. Þá tóku prestshjónin Finn og fjöl- skyldu hans Jieimili sitt, enda gekk kona Finns yngri dóttur þeirra i móðiir stað þegar við fæðingu liarnsins. Einn feg- ursti þáttur sögunnar er vinfengi barnanna, Sölva Finnssonar og Blíðar, eldri dóttur prestsins. Má það skoðast sem mót- vægi þeirrar mannvonzku og illra örlaga, sem bera sigur úr býtum. Börnin drukkna á voveiflegan hátt. Séra Sturla finn- ur líkin í fjörunni, þar sem þau halda Iivort í annars föt- Svo kemur Finnur á slysstaðinn, og feðurnir bera börn sín heirn. Eftir það fer Finnur til Ameríku með fjölskyldu sína og þá dóttur prestsins, sem eftir lifir. Séra Sturla missir vitið, gengur síðan meðal manna, en gerir engri skepnu mein, held- ur leggur lykkju á leið sína til þess að stíga ekki ofan á orxna á götunni og tekur marglytturnar, sem skolast við ströndina, upp í vatnsfötu, rær með þær út á sjó og hellir þeim útbyrðis- Með Ströndinni verður gagnger stefnubreyting á ritferli Gunnars Gunnarssonar um sinn að því leyti, að hún er ósvik-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.