Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1959, Qupperneq 40

Eimreiðin - 01.07.1959, Qupperneq 40
182 EIMREIÐIN fremst. Um tvö af höfuðskáldum Norðmanna, Björnson og Ibsen, hefur verið sagt, að annar væri hjartans, en hinn and- ans maður, og getur hver, sem les verk þessara jöfra, sann- færzt um, að það er ekki mælt út í bláinn. Á sama hátt getur sannleikshollustan verið æðsta boðorð rithöfundar. Ég heyrði einn lærðasta bókmenntafræðing Noregs komast þannig að orði um Sigrid Undset, þriðja höfuðsnilling þess lands, að í öllum hennar sögulegu skáldsögum væri hvergi rangt með farið neina fræðilega staðreynd. Til slíkrar sannleiksholl- ustu hlýtur að þurfa sterkan vilja með afbrigðum og mikla trúmennsku. Mætti því kalla Undset höfund sannleiksástar og viljafestu. Gunnar Gunnarsson segir í eftirmála við Fóstbræður, að sér hafi „alla daga verið meinilla við að víkja frá sennilegum sögnum og atburðaröð.“ Á öðrum stað liggur fyrir vitnisburð- ur Gunnars um, af hvaða kostgæfni hann viðaði að sér heim- ildum í meistaraverkið Svartfugl.1) Sýnir þetta, að vöndug- leiki í meðferð þarf engan veginn að draga úr listagildi. svo sem dæmið um Sigrid Undset vottar eftirminnilega- Að þessu leyti er augljós skyldleiki Gunnars og hennar. Um líkingu með og áhrif frá Ibsen og Strindberg er áður getið. Sá samtímahöfundur, sem Gunnar hefur þó ef til vill dáð mest, er enska skáldið Thomas Hardy. Vandamál samfélags- ins, trúin á guð, tilgang lífsins og örlögin, blind eða miskunn- arlaus — ábyrgðin, sem fylgir því að vera maður — allt eru þetta meginþættir hjá báðum, dýpt tilfinninga og samúðar, sem einnig minnir á Björnson. En harmsár örlög söguhetja Gunnars eru víða svo átakanleg, að aftur og aftur verður mér hugsað til hins enska snillings. Nægir að benda á seku konurnar, Steinunni frá Sjöundá í Svartfugli og Tess d’Ur- berville hjá Hardy, án þess að um neina stælingu sé að ræða. Og líkingin nær lengra. Þegar sögurómönum Gunnars og Sælir eru einfaldir og Vargi í véum sleppir, þá sækir hann efnið J allar áhrifaríkustu sögur sínar heim í Vopnaf jörð og nágrenni hans: Borgarættin, Ströndin, Fjallkirkjan, Heiðaharmur, Sálu- 1) Eftirmáli við Jörð, Rit IX. bls. 295—6.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.