Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1959, Blaðsíða 84

Eimreiðin - 01.07.1959, Blaðsíða 84
226 EIMREIÐIN stund, en fleygði síðan hnífnum harkalega frá sér og gekk út. En presturinn einn gaf þessu verulegan gaum. Hann og konan horfðust í augu, og hún gekk til hans. Þessi stóra, þrek- vaxna kona brosti, en bros hennar var ekki eðlilegt, og munnvikin titruðu. Hún var með stóra rauða díla í kinnun- um og á holdugum hálsinum, og dálítil stund leið, þar til hún sagði nokkuð. Þá bað hún prestinn með hárri röddu að koma fram og heimsækja unga fólkið. Þegar þessi nppdubbaða, brosmilda kona hafði leitt hann út úr veizlusalnum, lokaði hún dyrunum á eftir þeim, og hönd- in nam staðar á dyrahúninum. Málæði og hlátrar færðust í aukana þar inni, en rauðu dílarnir hurfu úr kinnum hennar, hún gerbreyttist, varð ekki föl, lieldur öskugrá. „Hvað hefur komið fyrir?" spurði presturinn. „Komið og sjáið,“ sagði hún í hálfum hljóðum. Hann elti hana um marg- ar skuggalegar stofur, þar til þau komu inn í vinnuhjúaher- bergið. Hvítskúraða borðið hafði verið rutt og 4 það lagður vika- drengurinn Jens Otto. Hann lá þar endilangur, hljóður og lífvana. Brúnu augun störðu brostin upp í svart loftið. Vinnuhjúin stóðu í smáhópum við dyrnar. Sum reyndu að kæfa grátinn í svuntum sínum eða klútum. Önnur hímdu náföl og hljóð, eins og þau gerðu sér ekki grein fyrir því. sem var skeð. Á bekknum bak við borðið sátu enn þá öku- þórarnir og kúasmalinn Jóhann. Tveir, hinir fyrrnefndu, sátu og studdu sig við borðbrúnina og störðu á luralegar, sigggrónar hendur sínar. Þeir vissu víst ekki, hvað þeir áttu af sér að gera. En kúasmalinn hallaði breiðu baki sínu að veggnum og gaut augunum frá einum til annars eins og dýr, sem gengið er í gildru. Húsbóndinn gekk að honum og gaf honum vænan löðrung í andlitið. „Ófétið þitt,“ hreytti hanu út úr sér. Jóhann beygði sig, og langir handleggir hans voru þegar á lofti til þess að skýla höfðinu. Og hann horfði að nýju flóttalega í kringum sig. Presturinn sá þetta allt saman eins og í draumi. Hann gekk að einum veggnum og tók spegil, sem hékk þar, og hélt hon- um yfir vitum drengsins. „Það er ekkert liægt að gera, héðan af,“ sagði ein eldastúlk-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.